fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

„Ábyrgðarlausir“ ferðamenn á vinsælum ferðamannastað gætu átt yfir höfði sér sekt fyrir notkun neyðarþjónustu

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kjölfar fjölmargra neyðarútkalla undanfarið hafa embættismenn Kanaríeyja gagnrýnt  ferðamenn fyrir að hunsa öryggisráðleggingar og hafa hótað að beita ferðamenn sektum fyrir.

„Neyðarbjörgunar- og leitaraðgerðir kosta sitt“, sagði Fernando Figuereo, yfirmaður neyðarþjónustu landsins. „Neyðarþjónustan er ekki ókeypis.“

Sem dæmi segir hann að notkun björgunarþyrlu í klukkustund geti kostað yfir 2.000 dali.

„Við skiljum að gáleysislegir einstaklingar þurfa að borga. Þetta snýst ekki um að refsa einhverjum sem hefur dottið, heldur fyrir gáleysi,“ sagði Figuereo á blaðamannafundi 10. febrúar.

Figuereo nefndi dæmi um að gestir hunsuðu rauða fána á ströndum, sem leiddi til sjóslysa.

„Við viljum að lögreglan á Kanaríeyjum, sem er virk á öllum eyjunum, komi að því svo hún geti skráð einstaklinga sem bjargað er ef vanræksla er sönnuð,“ sagði hann.

Ríkisstjórnin vinnur að því að semja nýjar breytingar á almannavarna- og neyðarlögum.

Í janúar lenti 23 ára ferðamaður í lífshættu eftir að hafa dottið á gönguferð í Los Gigantes-klettunum, svæði sem er óaðgengilegt yfirferðar.

Lík ferðamanns fannst í sama mánuði undan ströndum suðurhluta Lanzarote. Höfðu félagar hans tilkynnt að hans væri saknað. Köfunarteymi, slökkviliðsmenn, þyrla, björgunarsveitir á sjó og lögregla björguðu að lokum þremur félögum hins látna. Mennirnir voru sagðir vera nemendur í Madríd sem höfðu heimsótt svæðið saman. Þeir höfðu gengið inn á svæðið þrátt fyrir vegalokun.

Samkvæmt gögnum stjórnvalda heimsóttu um 18,4 milljónir ferðamanna, bæði erlendis frá og frá meginlandi Spánar, Kanaríeyjar árið 2025.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum