

Konan tók fram að hún hafi lagt bílnum upp á gangstétt þar sem engin bílastæði voru laus fyrir utan umrædd fjölbýlishús í Bökkunum. Þá sagðist hún vera öryrki og ganga um á hækjum og því séu góð ráð dýr þegar skortur er á bílastæðum.
Í færslu sinni var konan býsna harðorð og sagði raunar að þetta væri í annað skiptið sem spegill á bifreið hennar er brotinn, það hafi einnig gerst í vetur þegar hún var með bílaleigubíl í leigu.
Í færslunni segir konan orðrétt:
„Þú sem gerir þetta mátt Fokka þér !! þetta eru skemmdir sem þú ert valdur og átt að borga fyrir !! þú getur labbað framhjá bílnum !!! núna sit ég uppi aftur með kostnað upp á tugi þúsunda !! Orðið djöfulli fkn þreytt dæmi ! hættu að skemma eigur annara ef þú ert ekki borgunar manneskja fyrir því !!! ert ekki í lagi i hausnum. p.s mér er drull sama orðbragðið!!”
Viðbrögðin við færslunni voru nokkuð fyrirsjáanleg en þar segja margir að konan geti bara sjálfri sér um kennt.
„Lærðu bara að leggja lōglega þá lendir þú kannski ekki í svona löguðu aftur,” segir í einni athugasemd og aðrar eru í svipuðum dúr „Spurning um að leggja í stæði en ekki uppi á GANGSTÉTT,“ segir annar. „Enn og aftur engin helvitins stæði til að leggja í eða er lesskilningurinn svona lítill,“ svarar konan þá.
Sumir benda þó réttilega á að þó lagt sé ólöglega réttlæti það ekki undir neinum kringumstæðum skemmdarverk. Kallar að minnsta kosti ein eftir meiri kærleik í athugasemdum.
„Hvað er að ykkur? Réttlætir það að leggja uppi á gangstétt skemmdarverk á bíl? Hvað ef það var neyðarástand eða einhver önnur ástæða en “ekkert laust stæði”, þessi hugsunarháttur þarf að breytast og fólk þarf að finna meiri kærleik og virðingu gagnvart náunganum innra með sér.“