

Allt er á suðupunkti í Bandaríkjunum eftir að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti lista yfir 305 þekkta einstaklinga, skemmtikrafta og stjórnmálamenn sem birtust í Epstein-skjölunum. Reiðin beinist þó ekki að einstaklingunum á listanum heldur að dómsmálaráðherranum Pam Bondi sem sökuð er um, af ýmsum Demókrötum og Repúblikunum, að slá ryki í augun á fólki með birtingunni.
Á listanum mátti sjá kunnuleg nöfn í umræðunni um skjölin eins og Ghislaine Maxwell, Donald Trump, Bill Clinton og Bill Gates en einnig nöfn Tony Blair, Robert de Niro, Kim Kardashian og Mark Zuckerberg.
Vandinn er sá að listinn tiltekur ekki í hvaða samhengi fólk birtist í skjölunum. Sumir einstaklingar eru í virkum samskiptum við níðinginn alræmda á meðan aðeins er minnst á aðra í einhverjum tölvupóstum.
Til að mynda má finna nafn tónlistarkonunnar Janis Joplin á listanum en hún lést þegar Epstein var 17 ára táningur.
Þá lét dómsmálaráðuneytið frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrt var að nú hefðu öll Epstein-skjölin verið birt í samræmi við löggjöf þess efnis sem samþykkt var í nóvember í fyrra.
Fjölmargir eru gríðarlega ósáttir við þá fullyrðingu enda hafi fjölmargt verið ritskoðað í skjölunum fyrir birtingu og margt af því andstætt lögunum áðurnefndu.
Dómsmálaráðherrann Bondi hefur fullyrt að allt það sem hafi verið falið sé til þess vernda fórnarlömb en aðrir saka hana um að vera að hylma yfir með meintum samverkamönnum Epstein.
Einn þeirra er Ro Khanna, þingmaður Demókrata, sem hefur fengið að skoða hluta skjalanna án ritskoðunar en þar fann hann allnokkur dæmi þess að strokað hefði verið yfir nöfn sem ekki hefði átt að fela. Hann hefur krafist þess að skjölin verði birt í heild sinni og aðeins nöfn fórnarlamba verði fjarlægð.


