fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ásta Lóa fór ekki út úr húsi í nokkrar vikur eftir afsögnina – Þakkar gífurlegan stuðning almennings

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, var í viðtali við Samstöðina. Þar ræddi hún þjóðmálin vítt og breitt, ekki síst vaxta-, húsnæðis- og lánamál, en í síðari hluta viðtalsins opnaði hún sig um tímann í kringum afsögn hennar úr ráðherraembætti í marsmánuði árið 2025. Sagði hún af sér í tengslum við játningu á því að hafa fyrir rúmlega þremur áratugum, er hún var 22 ára, átt í ástarsambandi við 16 ára pilt og eignast með honum barn.

Sagði hún af sér í kjölfar þess að RÚV hafði samband við hana og greindi henni frá þessu væntanlega fréttaefni, auk þess að óska eftir viðtali. Fyrsta frétt RÚV um málið var umdeild og mörgum þótti hún ekki fyllilega nákvæm né sanngjörn. Um það eru skiptar skoðanir. Spyrill Samstöðvarinnar, Björn Þorláksson, spurði hvernig henni hefði liðið þegar hún sá fyrstu fréttina.

„Ég heyrði þetta ekki. Ég hef ekki hlustað, hvorki hlustað né horft á neitt frá þessum tíma. Ég hef ekki getað það.“ – Hún segist þó um síðir hafa fengið upplýsingar um innihald þessarar fréttar og segir: „Fréttin, hún var mjög röng og mér finnst ótrúlegt að eina manneskjan sem þurfti að segja af sér út af þessu var ég.

Ásta Lóa segist hafa upplifað ótrúlega mikinn stuðning almennings vegna málsins og stuðningsskeyti til hennar voru yfir þúsund auk þess sem sumir hafi gefið henni blóm og gjafir:

„Ég á þá sérstöku upplifun að hafa fengið alveg gríðarlegan stuðning hjá þjóðinni. Og fólki var virkilega ofboðið. Maður fann það. Þetta gerist á fimmtudegi, þetta byrjaði að snúast í hádeginu á föstudeginum. Fólk kom til mín með gjafir og blóm. Og sendi mér skilaboð, ég hef örugglega fengið á annað þúsund skilaboð.“

Lokaði sig af

„Ég fór varla úr úr húsi nokkra vikur á eftir. Svo fórum við erlendis, stungum bara af í smátíma. En alls staðar þar sem ég fór var fólk að stoppa mig lýsa yfir stuðningi. Ótrúlegt að upplifa þetta, ég á ekki til orð til að þakka þessu fólki.“

Ásta Lóa er líka ósátt við umfjöllun Morgunblaðsins um sig frá þessum tíma:

„Mér finnst mjög sérstakt að daginn eftir, eða þarna í hádeginu á föstudeginum, er Morgunblaðið tilbúið, eða Stefán Einar, með alls konar lygar um mín húsnæðismál, um einhverja sérsamninga og spillingu og eitthvað sem ég hafði átt að fá varðandi heimili okkar frá Arion banka. Og þetta er svo yfirgengilega langsótt að það er ekki einu sinni fyndið.“

Viðtalið í heild er í spilaranum hér fyrir neðan en umræða um það sem hér hefur verið nefnt hefst í kringum 45. mínútu:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“