fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Svona á Suðurlandsbraut að breytast með Borgarlínunni

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 12:34

Hluti Suðurlandsbrautar skv. auglýstu deiliskipulagi. Mynd: Reykjavíkurborg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tillaga að deiliskipulagi Borgarlínu um Suðurlandsbraut er nú komin í auglýsingu á vef borgarinnar og í Skipulagsgátt. Skipulagssvæðið nær utan um breytta götumynd Suðurlandsbrautar milli Skeiðarvogar og Lágmúla.

Almenningi og öllum áhugasömum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir og ábendingar eftir að hafa kynnt sér gögnin sem öll verða birt í Skipulagsgáttinni. Opið verður fyrir athugasemdir til og með 12. mars 2026. 

Framkvæmdir á Suðurlandsbraut vestan Grensásvegar eru áætlaðar 2027 til 2029 og austan Grensásvegar 2028 til 2030.

 

Deiliskipulag er ein lykilforsenda þess að framkvæmdir geti hafist. Skipulagsáætlanir skilgreina meðal annars hvernig umhverfið mótast, hvar stöðvar verða staðsettar og hvernig vegfarendur munu fara um svæðin. Nú þegar er búið að samþykkja níu deiliskipulagsáætlanir þar sem gert er ráð fyrir Borgarlínu. Þær ná yfir: Fossvogsbrú, Nauthólsvík, Háskólann í Reykjavík,  Nauthólsveg, Nýja Landspítalann, Hlemm, efri hluta Laugavegar og tvo hluta Ártúnshöfða. Fyrsta lota Borgarlínu sem liggur á milli Ártúnshöfða og Hamraborgar um Fossvogsbrú nær yfir 12 kílómetra í Reykjavík.

Helstu breytingar á Suðurlandsbraut 

Þetta eru helstu breytingarnar á Suðurlandsbraut:

  • Bætt verður við Borgarlínubrautum milli Skeiðarvogar og Lágmúla ásamt þremur stöðvum; við Glæsibæ,  Laugardalshöll og Lágmúla.
  • Hjóla- og göngustígum verður bætt við sunnan Borgarlínubrauta en núverandi stígar norðan megin haldast óbreyttir. Þannig verður aðgengi virkra ferðamáta við götuna bætt verulega.
  • Akreinar fyrir almenna bílaumferð verða að mestu leyti einbreiðar, nema við stærri gatnamót þar sem geta verið viðbótarakreinar vegna beygjustrauma.
  • Græn ásýnd gatna er aukin með skilgreindum svæðum fyrir gróður og regnvatnslausnir ofanjarðar.
  • Aðkomu bíla og bílastæða við Suðurlandsbraut 4-32 verður breytt.

Hefðbundnar stöðvar verða með 20 metra langa brautarpalla en stöðin við Laugardalshöll og væntanlega þjóðarhöll verður með lengri brautarpalli, um 40 metra löngum, til að gera ráð fyrir auknum afköstum fyrir stóra viðburði í Laugardalnum. Við allar stöðvar verður gert ráð fyrir að koma megi fyrir hjólastæðum.

Myndband um deiliskipulagsbreytinguna má sjá hér.

Deiliskipulagsbreytingin felur í sér breytingar á gatnamótum og bílastæðum, sérakreinum fyrir Borgarlínu og uppbyggingu meðfram Borgarlínunni.

Breytingar á gatnamótum

Deiliskipulagsbreytingin felur í sér endurskipulagningu gatnamóta á Suðurlandsbraut með það að markmiði að bæta umferðaröryggi, auka greiðfærni Borgarlínu og bæta aðstæður fyrir gangandi og hjólandi.

Það hefur í för með sér nokkra takmörkun á möguleikum að beygja til vinstri á gatnamótum.  Það gildir þó ekki um stærstu gatnamótin þar sem áfram verða umferðarljós og allir beygjur heimilaðar. Þetta eru gatnamótin við Reykjaveg, Vegmúla, Grensásveg.

Á nokkrum gatnamótum verða vinstri beygjur takmarkaðar. Við Álfheima verða áfram umferðarljós en ekki verður unnt að beygja til vinstri frá Suðurlandsbraut. Áfram verður hægt að beygja til vinstri frá Álfheimum. Annars staðar verður einungis unnt að fara út af Suðurlandsbraut eða inn á hana með hægri beygju. Göngu- og hjólastígar samsíða Suðurlandsbraut verða upphækkaðir yfir þvergöturnar til að auka öryggi og sýnileika. Gatnamótum Suðurlandsbrautar og Engjateigs verður lokað.

Gatnamót Suðurlandsbrautar og Vegmúla í dag. Mynd: Reykjavíkurborg.
Gatnamót Suðurlandsbrautar og Vegmúla skv. auglýstu deiliskipulagi. Mynd: Reykjavíkurborg.

Sérakreinar fyrir Borgarlínu

Í gegnum allt skipulagssvæðið er gert ráð fyrir tveimur sérakreinum fyrir miðju fyrir Borgarlínu. Miðjusettar akreinar Borgarlínu eru ákjósanlegastar út frá umferðaröryggi og aðgengi. Lagt er upp með að aðgengi gangandi og hjólandi að Borgarlínustöðvunum frá þjónustu og vinnustöðum sunnan við Suðurlandsbraut sé sem allra best, styst og öruggast. Einnig er þannig dregið úr neikvæðum áhrifum í gatnamótum og við tengingar inn á lóðir þar sem ekki þarf víkja fyrir Borgarlínunni. Þegar horft er til fjölda einstaklinga frekar en fjölda ökutækja eykst flutningsgeta Suðurlandsbrautar með sérakreinum Borgarlínu umfram það sem hægt er að ná með núverandi fyrirkomulagi.

Horft eftir Suðurlandsbraut í átt að miðborginni. Mynd Reykjavíkurborg.
Sama sjónarhorn skv. auglýstu deiliskipulagi. Mynd: Reykjavíkurborg.

Breytingar á bílastæðum

Í tengslum við endurskipulagningu Suðurlandsbrautar er gert ráð fyrir breytingum á bílastæðum við Suðurlandsbraut 4–32. Þessar lóðir eru utan marka hins auglýsta deiliskipulags, en liggja að skipulagssvæðinu.

Bílastæði á þessu svæði eru bæði innan lóðamarka og á borgarlandi. Til að rýma fyrir Borgarlínu og bæta aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur við Suðurlandsbraut er gert ráð fyrir að núverandi bílastæði á borgarlandi verði fjarlægð.

Bílastæðagreining hefur verið gerð á þessu svæði en á lóðum og borgarlandi við Suðurlandsbraut 4–32 eru í dag um 1.600 bílastæði. Þar af eru um 550 stæði fyrir framan byggingarnar en 180 af þeim eru í borgarlandi.

Til að tryggja áframhaldandi tvístefnuakstur á bílastæðasvæðum fyrir framan byggingar þarf að endurskoða útfærslu bílastæða og akreina. Endanleg útfærsla liggur ekki fyrir og verður leitast til að móta hana áfram í samráði við lóðarhafa.

Uppbygging meðfram Borgarlínu

Uppbyggingarreitirnir í borginni raðast meðfram þróunarás sem hefur verið skilgreindur í aðalskipulagi í lengri tíma. Eitt af meginmarkmiðum Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 er að 80% nýrra íbúða til 2040 verði innan áhrifasvæðis Borgarlínu. Markmið svæðisskipulags höfuðborgarsvæðis 2015–2040 er að 2/3 af íbúum búi í nálægð við samgöngu-og þróunarása Borgarlínu.

Á Suðurlandsbraut milli Kringlumýrarbrautar og Grensásvegar er gert ráð fyrir að mest aki 17 vagnar í hvora átt á klukkustund og milli Grensásvegar og Skeiðarvogs 21 vagn í hvora átt á klukkustund.

Gerðar hafa verið athuganir á áhrifum breytinganna á val á ferðamáta og dreifingu umferðar með samgöngulíkani höfuðborgarsvæðisins. Miðað við þær fjölgar vegfarendum um Suðurlandsbraut töluvert.  Farþegum sem ferðast með almenningssamgöngum um Suðurlandsbraut fjölgar um næstum 20 þúsund til ársins 2040 en á sama tíma er gert ráð fyrir að bílferðum um Suðurlandsbraut fækki um fimm til sjö þúsund. Hluti breytinganna felst í því að vegfarendur velja annan ferðamáta en í dag en hluti felst í því að bílaumferð færist til, mest yfir á Miklubraut, þar sem gert er ráð fyrir Miklubrautargöngum og yfir á Sæbraut.

Nánar má lesa um Borgarlínuna á Suðurlandsbraut og sameiginlega framtíðarsýn um samgöngur hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”