fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Eva María, Erna og Ingibjörg Sólrún heiðraðar á stórglæsilegri Viðurkenningarhátíð FKA

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 07:14

Erna Magnúsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Eva María Þórarinsdóttir Lange. Mynd: Silla Páls Mirror Rose.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva María Þórarinsdóttir Lange, stofnandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland, Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, utanríkisráðherra og forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, voru heiðraðar á Viðurkenningarhátíð Félags kvenna í atvinnulífinu.

Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, konur með veitingu FKA Viðurkenningarinnar, Hvatningarviðurkenningar FKA og Þakkarviðurkenningar FKA. Viðurkenningarhátíðin fór fram miðvikudaginn 28. janúar á Hótel Reykjavík Grand þar sem fjöldi gesta úr atvinnulífi og samfélagi kom saman og fagnaði viðurkenningarhöfum ársins.

Fjöldi tilnefninga og vandasamt val

Tilnefningar bárust víðs vegar að af landinu og fór dómnefnd yfir rúmlega eitt hundrað tilnefningar í öllum flokkum. Ljóst var að úr vöndu var að ráða, enda margar konur sem hafa lagt sitt af mörkum til öflugra atvinnulífs og betra samfélags.

Í dómnefnd sátu Benedikt Gíslason, Davíð Stefánsson, Isabel Alejandra Díaz, Rannveig Grétarsdóttir, Rán Flygenring og Þuríður Aradóttir Braun, formaður dómnefndar og stjórnarkona FKA.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra flutti erindi á hátíðinni og Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, stýrði dagskrá kvöldsins. Mikill fögnuður ríkti í salnum þegar viðurkenningarhafarnir voru klappaðir upp á svið.

FKA Viðurkenningin 2026

Eva María Þórarinsdóttir Lange – Pink Iceland

Eva María Þórarinsdóttir Lange hlaut FKA Viðurkenninguna 2026 fyrir framúrskarandi frumkvöðlastarf í ferðaþjónustu og jafnréttismálum. Sem stofnandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland hefur hún byggt upp alþjóðlega viðurkennt fyrirtæki sem hefur skapað verðmæti fyrir íslenska ferðaþjónustu og haft áhrif langt út fyrir eigin rekstur.

Undir hennar forystu hefur Pink Iceland haft veruleg áhrif á íslenskt atvinnulíf og ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Eva María hefur verið öflug talskona jafnréttis og fjölbreytileika og skapað nýtt rými fyrir konur og hinsegin einstaklinga í atvinnulífinu. Hún er skýr fyrirmynd í frumkvöðlastarfi, forystu og samfélagslegri ábyrgð.

Hvatningarviðurkenning FKA 2026

Erna Magnúsdóttir – Ljósið

Erna Magnúsdóttir hlaut Hvatningarviðurkenningu FKA 2026 fyrir athyglisvert frumkvæði og nýsköpun í þjónustu og samfélagslegum rekstri. Sem stofnandi og framkvæmdastýra Ljóssins hefur hún byggt upp einstaka endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Starfsemi Ljóssins hefur haft djúpstæð áhrif á líf þúsunda einstaklinga og er í dag órjúfanlegur hluti af íslensku velferðarkerfi. Forysta Ernu einkennist af hlýju, seiglu og skýrri framtíðarsýn, og hún hefur sýnt í verki hvernig frumkvæði einstaklings getur skapað varanleg samfélagsleg áhrif og um leið mikilvægan stuðning inn í atvinnulífið.

Þakkarviðurkenning FKA 2026

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlaut Þakkarviðurkenningu FKA 2026 fyrir ævilangt og áhrifamikið framlag til stöðu kvenna, forystu og samfélagslegrar framþróunar. Hún hefur gegnt lykilhlutverkum í íslensku samfélagi sem borgarstjóri Reykjavíkur, utanríkisráðherra og síðar á alþjóðavettvangi.

Ingibjörg Sólrún hefur alla tíð verið óhrædd við að beita rödd sinni fyrir mannréttindum, jafnrétti og lýðræði og skapað rými fyrir konur til þátttöku, áhrifa og ábyrgðar. Með forystu sinni hefur hún rutt brautina fyrir heilar kynslóðir kvenna og lagt ómetanlegt ævistarf í þágu jafnréttis og samfélagslegrar ábyrgðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“