fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stórtækur þjófur dæmdur: Stal úr Elko, Hagkaup og Krónunni og var svo gripinn með ísöxi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir þjófnað og vopnalagabrot. Maðurinn var alls dæmdur fyrir sjö þjófnaðarbrot sem framin voru áður en hann var handtekinn, vopnaður ísöxi, fyrir utan skemmtistaðinn Dillon.

Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi, í félagi við annan, stolið útivistarfatnaði úr verslun 66°Norður fyrir 207.400 krónur þann 15. október 2023. Hálfum mánuði síðar, þann 30. október, var hann á ferðinni í verslun Elko þar sem hann stal tveimur JBL heyrnartólum að söluverðmæti 35.988 krónur.

Hann stal svo tveimur ilmvatnsglösum úr Hagkaup, hettupeysu úr Smash Urban, og peysu úr Gallerí 17 þann 28. febrúar 2024. Söluverðmæti þess sem hann stal þennan febrúardag nam tæpum 110 þúsund krónum.

Hann var svo ákærður fyrir þrjú þjófnaðarbrot úr verslunum Krónunnar, framin á tímabilinu frá mars 2024 til september 2024, þar sem hann stal matvöru. Þar á meðal voru 5,4 kíló af kjúklingabringum, sex pakkningar af lambakjöti og tvær pakkningar af Tigris rækjum.

Loks var hann ákærður fyrir að hafa, í janúar í fyrra, stolið tveimur koníaksflöskum úr verslun ÁTVR og tveimur dósum af Víking bjór.

Vopnalagabrotið var framið aðfaranótt 5. apríl í fyrra þegar hann var handtekinn með ísöxi fyrir utan skemmtistaðinn Dillon.

Maðurinn neitaði sök í fyrstu en breytti síðar afstöðu sinni þar sem hann játaði öll brot sín samkvæmt ákæru. Hann tók fram varðandi vopnalagabrotið að hann hefði verið undir áhrifum áfengis og vímuefna og talið öryggi sínu ógnað. Hann hafi ekki ætlað sér að beita exinni og hafi ekki beitt henni gegn nokkrum manni.

Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin og rauf hann með brotum sínum skilorð dóms frá árinu 2022 sem hann hlaut fyrir líkamsárás. Sex mánaða fangelsi var því niðurstaðan, en þrír mánuðir eru skilorðsbundnir til tveggja ára.

Auk þess var ísöxin gerð upptæk og þá var honum gert að greiða málsvarnarþóknun verjanda síns, 282.720 krónur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart