fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Segir tollverði hafa látið sig afklæðast að ástæðulausu og án lagaheimildar

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 16:30

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð sinni á kvörtun ónefnds einstaklings vegna meðferðar sem viðkomandi segist hafa hlotið hjá tollvörðum á Keflavíkurflugvelli skömmu fyrir síðustu jól. Segist einstaklingurinn hafa verið látin afklæðast að fullu án nokkurra skýringa og án heimildar í lögum.

Það kemur ekki fram í bréfi umboðsmanns til kvartandans af hvaða kyni viðkomandi sé en af bréfinu má ráða að viðkomandi sé af erlendum uppruna og hafi ekki íslensku sem móðurmál.

Í bréfinu kemur fram að kvörtunin var lögð fram þann 7. janúar síðastliðinn og að hún lúti að framkomu tollvarða á Keflavíkurflugvelli í garð kvartandans þann 22. desember 2025. Nánar tiltekið lúti kvörtunin að því að kvartandinn hafi verið látinn undirgagnast leit þar sem hann hafi þurft að afklæðast að fullu án þess að honum hafi verið gerð grein fyrir ástæðu leitarinnar og lagagrundvelli hennar, án aðstoðar túlks og án þess að ástæða hafi verið til að leita á honum með þessum hætti. Þá var í kvörtuninni farið þess á leit við umboðsmann að veittar yrðu útskýringar á tilgreindum atriðum varðandi leitina.

Ljúka

Í svari sínu bendir umboðsmaður á að samkvæmt lögum taki embættið ekki mál fyrir fyrr en stjórnvöld, þar með talið æðra stjórnvald þegar það eigi við, hafi lokið umfjöllun sinni um málið.

Í samræmi við þetta hafi þeirri starfsvenju verið fylgt hjá umboðsmanni að kvartanir, sem lúti að því hvernig einstakir starfsmenn í stjórnsýslunni ræki skyldur sínar, verði almennt að hafa verið bornar undir þann, sem fari með agavald gagnvart viðkomandi starfsmanni, áður en þær geti komið til athugunar hjá umboðsmanni. Þannig fái forstöðumaður stofnunar tækifæri til að fjalla um málið og taka afstöðu til þess hvort tilefni sé fyrir hann að bregðast við gagnvart umræddum starfsmanni.

Bendir umboðsmaður á að samkvæmt tollalögum fari ríkisskattstjóri með tollamálefni og skipi hann tollverði til starfa hjá Tollgæslu Íslands. Tollgæslustjóri fari síðan með daglega stjórn og rekstur Tollgæslu Íslands í umboði ríkisskattstjóra.

Annað

Segir enn fremur í bréfi umboðsmanns til umrædds einstaklings að hvorki verði séð að hann hafi borið aðfinnslur sínar upp við tollgæslustjóra né ríkisskattstjóra. Rétt sé að beina þessum athugasemdum til þeirra. Umboðsmaður minnir einnig á að samkvæmt tollalögum fari fjármála- og efnahagsráðherra með æðstu stjórn tollamála í landinu. Ráðherrann hafi eftirlit með því að tollyfirvöld ræki skyldur sínar. Hann hafi rétt til þess að fá til athugunar tollskjöl aðila og gögn varðandi þau og krefja tollyfirvöld skýringa á öllu því er varði framkvæmd laganna.

Telur umboðsmaður að í samræmi við ákvæði laga sé rétt að æðra stjórnvaldi sé gefinn kostur á að beita heimildum, sem í yfirstjórnunar- og eftirlitshlutverki þess felist, telji það tilefni til, áður en umboðsmaður taki kvörtun til meðferðar. Því sé réttast að kvartandinn leiti til fjármála- og efnahagsráðuneytisins sé hann ósáttur að fenginni niðurstöðu ríkisskattstjóra. Leiti hann til ráðuneytisins og sé ósáttur eftir að niðurstaða þess liggi fyrir geti hann leitað til umboðsmanns á nýjan leik með kvörtun.

Hvað varðar beiðni kvartandans um tilgreindar útskýringar á atriðum varðandi leitina ráðleggur umboðsmaður honum að beina henni til tollgæslustjóra og eftir atvikum í framhaldinu ríkisskattstjóra.

Næsta skref fyrir kvartandann við fá úrlausn sinna mála ætti því samkvæmt umboðsmanni Alþingis að vera að snúa sér til tollgæslustjóra og ríkisskattstjóra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“