fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ómar Bragi fengið nóg: „Ömurlegt að heyra í fullorðnu fólki tala svona“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 13:16

Ómar Bragi. Mynd/UMFÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ómar Bragi Stefánsson, verkefnastjóri og framkvæmdastjóri móta hjá UMFÍ, segist vera orðinn afskaplega þreyttur á umræðunni um hvað börn og ungmenni, þá sérstaklega drengir, séu vonlaus.

„Kunna ekkert, geta ekkert og verða ekkert. Það er ömurlegt að horfa á og heyra í fullorðnu fólki tala svona til þeirra, jafnvel áhrifafólki sem er í ábyrgðarstöðum í samfélaginu sem við eigum að líta upp til,” segir Ómar í aðsendri grein á Vísi.

Hann segir að þessi umræða sé ekki til þess fallin að byggja upp eða styðja við þá sem á þurfa að halda. „Þessi umræða hefur verið og er til skammar hjá öllum þeim sem svona hafa talað.“

Ómar segir auðvelt að þykjast vita allt og hafa svör við alla, dæma aðra og reyna að upphefja sig – skella svo fram fullyrðingum sem innihalda jafnvel ekkert.

„Ég hef alla mína tíð unnið með börnum og ungmennum. Þvílík forréttindi segi ég. Við eigum gríðarlega flotta einstaklinga sem eru frábærar fyrirmyndir. Við getum horft til íþróttanna, tónlistarinnar, leiklistarinnar og fjölmargra annarra listgreina. Við getum horft til matreiðslunnar og allskonar verklegra þátta. Við eigum einnig mikið að langskólagengnu ungu fólki sem tekið er eftir bæði hér heima og erlendis,“ segir hann.

Ómar bætir við að alls staðar eigum við og sjáum við ungt fólk sem er að standa sig afburða vel á öllum sviðum. Hann hvetur okkur til að tala um þetta frábæra fólk.

„En eflaust er hægt að gera betur í uppeldi barna okkar og ungmenna. Kannski ættum við, foreldrar, að líta í eigin barm og skoða þann tíma sem við höfum verið með og erum með börnum og ungmennum. Erum við kannski svo upptekin að við erum ekki með þau í fyrsta sæti,“ segir hann.

Hann endar svo grein sína á að hætta að benda á kennara sem einhverja blóraböggla – þeir eigi betra skilið.

„Hættum að tala niður til barna og ungmenna og þykjast vera með lausnir á öllu sem þeim við kemur. Börn okkar og ungmenni eiga betra skilið,“ segir hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum