fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Ritstjórn DV
Mánudaginn 26. janúar 2026 09:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Bjarni hefur langa reynslu af þjóðfélags- og efnahagsmálum, Bjarni var meðal annars forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins.

Bjarni lauk námi í lögfræði frá Háskóla Íslands, er með meistaragráðu, LL.M. gráðu frá Háskólanum í Miami í Bandaríkjunum og hann er löggiltur verðbréfamiðlari.

„Bjarni býr yfir einstakri reynslu og innsýn í íslenskt atvinnulíf á mestu umbrotatímum í íslensku samfélagi síðustu áratugi. Fáir þekkja gangverk samfélagsins jafn vel. Á tímum þar sem íslenskt atvinnulíf stendur frammi fyrir áskorunum og tækifærum sem krefjast öflugrar hagsmunagæslu, skýrra áherslna og náinnar samvinnu lykilaðila í efnahagslífinu er Bjarni Benediktsson ómetanlegur í forystu fyrir íslensk fyrirtæki. Ég hlakka til samstarfsins.“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í tilkynningunni.

Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök atvinnulífsins en félagsmenn þeirra eru fjölbreytt fyrirtæki í öllum atvinnugreinum landsins sem samanlagt standa að baki um 70% launagreiðslna á almennum vinnumarkaði. Framtíðarsýn samtakanna er samfélag hagsældar og tækifæra og hlutverk þeirra er að styðja íslenskt atvinnulíf til verðmætasköpunar og jákvæðra áhrifa á samfélagið allt. Innan Samtaka atvinnulífsins eru sex aðildarsamtök.

„Hlutverk Samtaka atvinnulífsins er mikilvægt og ég hlakka til þess að starfa með öflugum hópi starfsmanna samtakanna og öllum haghöfum samtakanna að því að styðja íslenskt atvinnulíf til verðmætasköpunar. Eftir því sem atvinnulífinu gengur betur, þeim mun betri verða lífskjörin og þeim mun sterkara verður landið okkar.“ segir Bjarni Benediktsson, verðandi framkvæmdastjóri samtakanna, í tilkynningunni.

Bjarni tekur við starfinu þann 1. mars næstkomandi af Sigríði Margréti Oddsdóttur sem hefur verið ráðin forstjóri Bláa Lónsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”