fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Langahlíð fær nýtt útlit – Kostnaður borgarinnar 525 milljónir

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 23. janúar 2026 14:30

Langahlíð

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Langahlíð fær nýtt útlit og verður falleg borgargata með fyrirhuguðum framkvæmdum sem hefjast í vor. Markmið breytinganna samkvæmt tilkynningu frá borginni er að bæta aðstæður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og gera umhverfið öruggara og vistlegra. Framkvæmdirnar verða á svæðinu frá Eskitorgi að Miklubraut.

Mynd: Reykjavíkurborg/Róbert Reynisson

Framkvæmdin felur í sér umfangsmikla veituframkvæmd en í leiðinni fær gatan nýtt útlit en miðeyjan hverfur og sérstakir hjólastígar verða beggja vegna götunnar. Gangstéttir verða næst lóðamörkum en hjólastígarnir verða einstefnustígar upp við gangstéttarnar.

Einnig verða í hönnuninni innleiddar blágrænar ofanvatnslausnir sem draga úr álagi á fráveitukerfi og hreinsa ofanvatn en það þýðir að gróður verður beggja vegna götunnar, á milli götu og stíga.

Fyrir og eftir: Hjólastígar eru þarna í dag en verið er að endurgera þá með varanlegum hætti. Myndin fyrir neðan gefur til kynna hvernig þetta kemur til með að líta út. Hjólastígurinn er rauður á myndinni til skýringar en verður ekki þannig að framkvæmdum loknum.

Drápuhlíð vestan Lönguhlíðar endurnýjuð

Í sömu framkvæmdum verður Drápuhlíð vestan Lönguhlíðar einnig endurnýjuð, bæði veitukerfi og gata. Endanleg útfærsla hefur þó ekki enn verið ákveðin en framundan er samstarf við slembivalinn hóp íbúa í formi vinnustofu. Hönnun gæti tekið breytingum frá því sem áður hefur verið kynnt eftir frekara samtal við íbúa.

Farið verður í sameiginlegt framkvæmdaútboð með Veitum. Áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar er 525 milljónir króna en heildarkostnaðaráætlun hljóðar uppá 1.170 milljónir króna. Borgarráð samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 22. janúar að heimila umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna framkvæmdanna.

Nærumhverfið verður upplýst

Áætlað er að framkvæmdir hefjist í apríl og þær standi út árið 2027. Þegar verktaki verður kominn til leiks verða framkvæmdirnar útfærðar nánar. Veitur og Reykjavíkurborg munu, þegar nær dregur, vinna að því saman að upplýsa nærumhverfið um hjáleiðir og aðrar raskanir sem óhjákvæmilega fylgja stórum framkvæmdum.

Skoða má kynningu á framkvæmdunum hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”