fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gillz birtir yfirlýsingu vegna fréttar um að hann sé genginn í Samfylkinguna og biður um tilfinningalegt svigrúm

Ritstjórn DV
Föstudaginn 23. janúar 2026 19:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn og einkaþjálfarinn Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz, frétti það í dag að hann væri genginn í Samfylkinguna. Þetta las hann í slúðurfrétt sem birtist hjá Mannlífi þar sem hann er sagður genginn í Samfylkinguna ásamt fleiri þekktum nöfnum.

Egill var staddur á Tenerife þegar hann fékk tíðindin og hefur birt yfirlýsingu á Instagram þar sem hann kallar eftir þjóðarátaki gegn falsfréttum.

„Góðan daginn, ég er hér staddur á Tenerife og vil segja nokkur orð. Ég opnaði íslenskan miðil í dag þar sem stóð að ég væri genginn til liðs við Samfylkinguna. Ég vil biðja fólk að gefa mér tilfinningalegt svigrúm á meðan ég tekst á við þetta áfall og á sama tíma vil ég að þjóðin taki sig saman og berjist á móti falsfréttaflutningi. Elska ykkur, kveðja frá Tenerife.“

Mannlíf fjallaði í slúðurdálki sínum um smölun sem nú á sér stað hjá Samfylkingunni í Reykjavík þar sem Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Hafliði Marteinsson takast á um oddvitasætið. Mannlíf sagði að meðal nýrra meðlima í Samfylkingunni væru óvænt nöfn sem hefðu til þessa ekki verið tengd við flokkinn: Til dæmis Logi Bergmann Eiðsson sendiherraherra, Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður og svo Egill Einarsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum