fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Segir aldrei fleiri bílastæði í borginni – „Þessi umræða er mesta væl sögunnar….“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 08:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrafn Jónsson, starfsmaður á miðlunarsviði ASÍ, setti sér markmið að birta ljósmynd á dag í ár. Mynd þriðjudags er af morgunumferðinni á Kringlumýrarbraut frá Borgartúni. 

„Það ærir mig smá (mjög mikið) hvernig það á alltaf að reyna að snúa öllum sveitastjórnarkosningum í Reykjavík upp í umræðu um umferð og bílastæði. Ég hef ekki lesið færri en 4 innsendar greinar á Vísi síðustu tvo daga um fjölþætt óréttlæti blasir við fólki í bílastæðamálum. Fólk situr þarna fast í sjálfskapaðri umferðinni með Reykjavík Síðdegis skrúfað upp í 11 að fá æðaþrengingar yfir tilhugsuninni um hvar það ætli næst að leggja þessum pikkfasta bíl sínum.“

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Hrafn Jónsson (@krummijons)

Umræðan um bílastæðaleysi við nýbyggingar í höfuðborginni, fækkun bílastæða í miðborginni og gjaldskyldu þar og víðar hefur verið hávær í umræðunni síðustu misseri.

Nokkrir taka til máls undir færslu Hrafns á Facebook, og segir einn: „Kannski þær þyrftu ekki að gera það … ef það væru bílastæði?“

Íbúi í miðborginni til 30 ára segir umræðu frekar mega snúast um hvernig bílastæðamál eru orðin að gróðabrall en ekki sjálfsagðri þjónustu.

„Ég er búinn að vinna í miðbænum síðastliðin 13 ár og hef búið þar í tæp 30 ár. Er mikið á ferðinni í miðbænum og hef aldrei þurft frá að hverfa vegna bílastæðaskorts. Ég held að Reykjavík Síðdegis fólkið sem Hrafn vísar til viti ekki af tilvist bílastæðahúsa eða kunni ekki á Parka appið. Ef það mætti gagnrýna eitthvað, þá yrði það að vera þessi bissness sem bílastæðin eru orðin í dag. Þetta á að vera þjónusta við fólk en ekki gróðabrall.“

Annar tekur til máls og segir umræðuna mesta væl sem hann hefur heyrt, nægt framboð sé af bílastæðum í borginni og lausn í málaflokknum blasi við.

„Það eru um 1,3 bílastæði á hvern íbúa í Reykjavík. Þar með taldir eru íbúar sem hafa ekki aldur eða réttindi til að aka bíl. Það er langhæsta hlutfall bílastæða per íbúa í Evrópu. Og jú, líka meðtaldar borgir á Norðurlöndum þar sem eru svipaðar eða verri veðuraðstæður en í Reykjavík. Það hafa bókstaflega aldrei í sögu Reykjavíkur verið fleiri bílastæði í borginni. Þessi umræða er mesta væl sögunnar og mesta non-issue sem til er. Á sama tíma eru reglulega um 30-45 þús manns sem lýsa því yfir í könnunum að þau myndu gjarnan ferðast öðruvísi en í bíl, ef aðstæður til þess væru betri. Lausnin blasir við, svo ekki sé fastar að orði kveðið.“

Karlmaður býður pizzu að launum fyrir eftirfarandi mynd. Rétt er þó að benda áhugasömum ljósmyndurum á að 17 er löngu flutt og er verslun Ice Wear nú í húsinu. Um er að ræða Stjörnuport undir lóð Laugavegar 86-94 á gamla Stjörnubíó-reitnum.

„Ef einhver sýnir mér mynd af neðstu hæðina á bílakjallaranum til móts við 17 á Laugavegi fulla af bílum, þá gef ég viðkomandi pizzu. Fer fótgangandi með hana sjálfur hvert sem er innan Smá-Reykjavíkursvæðis.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart