

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að starfsmenn hafi heyrt í vinningshöfunum í morgun.
Sá fyrri til að fá símtalið hafði kíkt í appið um helgina og séð vinningsröðina sína.
„Ég trúði þessu varla og vildi ekki einu sinni segja konunni frá þessu fyrr en þetta væri orðið alveg 100% öruggt og staðfest,“ sagði hann léttur í bragði og bætti við að sunnudagurinn hefði orðið „skringilega góður“ án þess að hann gæti útskýrt af hverju – enn sem komið var.
Seinni vinningshafinn hafði hins vegar enga hugmynd. Hann svaraði símtalinu í morgun glaðbeittur og átti vart til orð þegar honum var tilkynnt um vinninginn.
„Þetta var þegar fínn mánudagur en hann varð skyndilega enn betri,“ sagði hann, hálf hikandi og dró andann djúpt á milli setninga til að átta sig á öllu saman.
Hann bætti við að hann hefði bara keypt miðann til að vera með og eiga möguleikann – og svo alls ekki hugsað meira út í það, hvað þá átt von á slíku símtali.
Í tilkynningunni kemur fram að Lottóappið hafi reynst vinsæll kostur meðal spilara sem vilja hafa hlutina á sem einfaldastan hátt – smella, sjá og halda í vonina. Í appinu er bæði auðvelt að kaupa staka miða og raðir, búa til áskrift og fylgjast með úrslitum. Að auki er hægt að skanna miða sem keyptir eru á sölustöðum til að kanna hvort þar leynist vinningur.
Báðum vinningshöfum stendur til boða fagleg fjármálaráðgjöf og hyggjast þeir nýta sér hana.
„Við óskum vinningshöfunum báðum innilega til hamingju og þökkum um leið þann stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélög víða um land, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.“