fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Brúni hundamítillinn greindist á hundi – hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi

Ritstjórn DV
Mánudaginn 19. janúar 2026 13:24

Mynd af Brúna hundamítlinum. Myndin er fengin af vefsíðu Keldna og tekin af Guðnýju Rut Pálsdóttur, sníkjudýrafræðingi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matvælastofnun hefur fengið tilkynningu um að brúni hundamítillinn (Rhipicephalus sanguineus) hafi greinst á hundi sem var í skoðun á Dýraspítalanum í Víðidal vegna kláða og útbrota í andliti.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAtvælastofnun. Þar segir að brúni hundamítillinn hafi ekki oft greinst hér á landi og sé ekki landlægur á Íslandi. Í þau skipti sem hann hefur greinst hafi í hvert skipti tekist að uppræta hann. Bendir Matvælastofnun á að unnið sé markvisst að því að koma í veg fyrir að þessi sníkjudýrategund nái fótfestu hér á landi.

Hvað geta hundaeigendur gert?

Matvælastofnun hvetur alla hundaeigendur til að:

  • Skoða húð og feld hunda sinna reglulega
  • Vera vakandi fyrir kláða, roða eða sárum í húð
  • Hafa tafarlaust samband við dýralækni ef grunur vaknar um mítla

Matvælastofnun segir að snemmgreining skipti miklu máli til að koma í veg fyrir útbreiðslu.

Hvernig berst mítillinn til landsins?

Brúni hundamítillinn getur borist hingað með fólki og farangri frá löndum þar sem hann er algengur, sérstaklega ef viðkomandi hefur verið í snertingu við dýr eða dýraumhverfi.

Til að draga úr áhættu er mikilvægt að:

  • Þvo allan fatnað sem hefur verið í snertingu við dýr
  • Hreinsa og þvo skó vel
  • Fjarlægja óhreinindi úr farangri
  • Sótthreinsa heimilið eftir þörfum

Um brúna hundamítillinn

  • Mítillinn nærist á blóði hunda en getur einnig lagst á önnur spendýr sem og fólk
  • Er eini mítillinn sem getur lifað allan lífsferilinn innanhúss, því getur hann fundist allan ársins hring
  • Aðeins um 5% mítla eru á dýrinu sjálfu – allt að 95% geta verið í umhverfinu
  • Getur lifað í upphituðu húsnæði í marga mánuði án fæðu

Smitsjúkdómar

Erlendis þekkist að brúni hundamítillinn geti borið smitefni sem valda alvarlegum sjúkdómum í hundum, svo sem Ehrlichia canis og Babesia canis. Þessi smitefni hafa ekki greinst á Íslandi.

Einnig getur mítillinn borið bakteríuna Rickettsia conorii, sem veldur svokölluðum Miðjarðarhafssótt í fólki. Sá sjúkdómur hefur ekki greinst hér á landi.

Viðbrögð við greiningu

Ef brúni hundamítill greinist:

  • Verður viðkomandi dýr sett í einangrun þar til lyfjameðferð er hafin og virk
  • Heimili þarf að ryksuga daglega, sérstaklega sprungur, lista og þröskulda
  • Þvo þarf bæli, teppi og fatnað
  • Frysting eða gufuhreinsun getur komið til greina ef ekki er hægt að þvo
  • Við mikla útbreiðslu gæti þurft að leita til meindýraeyðis

Til dýralækna

Matvælastofnun hvetur alla dýralækna til að vera sérstaklega á varðbergi.

  • Allir mítlar sem finnast skulu sendir til greiningar á Keldum
  • Greining er gjaldfrjáls
  • Staðfest tilfelli skal tilkynna tafarlaust til Matvælastofnunar: mast@mast.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“