fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Enn og aftur tapar Jeanine Pirro – Heimilislaus maður sýknaður á hálftíma fyrir að beina laser að þyrlu Trump

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 18. janúar 2026 16:30

Pirro virðist ekki starfi sínu vaxin. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það tók kviðdóm í Washington borg ekki nema 35 mínútur að sýkna mann af sökum um að hafa beint laser-geisla að þyrlu Donald Trump, Marine One. Er þetta enn eitt niðurlægjandi tapið hjá saksóknaranum Jeanine Pirro, fyrrverandi fréttamanni Fox News sem Trump lét skipa.

Breska blaðið The Guardian greinir frá þessu.

Maðurinn, hinn 33 ára Jacob Winkler, var handtekinn af lífvörðum Trump í september. Sögðust þeir hafa séð hann beina laser-geisla að þyrlunni þar sem hún flaug lágt yfir Hvíta húsið, með Trump innanborðs.

Var hann ákærður af saksóknara Washington borgar, Jeanine Pirro, fyrir að trufla flugvél. Hefði hann geta fengið allt að fimm ára fangelsisdóm fyrir, hefði hann verið fundinn sekur.

Pirro var yfirlýsingarglöð í aðdraganda málsins og sagði að embættið myndi setja fullan þunga í málið.

Winkler er heimilislaus maður og laser-geislinn umræddi er kattaleikfang. Tók það kviðdóminn ekki nema rúman hálftíma að sýkna hann þar sem málatilbúnaðurinn þótti ansi dapur.

„Í valdamestu borg heimsins eyðir ríkisstjórnin orku í að reyna að gera glæpamann úr heimilislausum manni með kattaleikfang á lyklakyppu,“ sögðu skipaðir verjendur Winklers.

Þetta bætist á lista misheppnaðra mála Pirro. Ekki er langt síðan að maður að nafni Sean Charles Dunn var sýknaður fyrir að kasta Subway samloku að útsendara landamæragæslunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum