fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Högni í haldi lögreglu í Kólumbíu – Varð alræmdur í Póllandi fyrir að lúberja lögreglumenn

Ritstjórn DV
Laugardaginn 17. janúar 2026 19:00

Högni Kjartan hefur valdið usla í Kólumbíu og Póllandi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og greint var frá í morgun er hinn 38 ára gamli Högni Kjartan Þorkelsson í haldi lögreglu í kólumbísku borginni Medellín grunaður um kynferðisbrot gegn 16 ára stúlku. Högni var handtekinn á Þorláksmessu á síðasta ári en Vísir greindi frá því að hann hafi verið í slagtogi við aðra stúlku á táningsaldri, sem og móður hennar, þegar hann var tekinn höndum. Málið hefur vakið nokkra athygli ytra.

Högni Kjartan í haldi kólumbískra lögreglumanna

Samkvæmt heimildum DV er þetta þó ekki í fyrsta sinn sem Högni Kjartan veldur usla á erlendri grundu og kemst í þarlenda fjölmiðla. Í október 2023 vakti það mikla athygli þegar ónefndur Íslendingur lúbarði lögreglumenn á lögreglustöð í Varsjá í Pólland en sá hafði verið tekinn höndum fyrir skemmdarverk í borginni.  Átti hann að hafa skemmt lúxusbifreið af gerðinni Bentley, með því að berja húdd hennar með fartölvu og sparka í stuðara hennar og var tjónið metið á um tvær milljónir króna.

Íslenskir fjölmiðla gerðu málinu skil en aldrei var greint frá nafni mannsins.

Heimildir DV herma að þar hafi Högni Kjartan verið á ferðinni en á öryggismyndavél lögreglustöðvarinnar sást hvernig hann átti allskostar við tvö pólska lögreglumenn í dágóða stund. Að endingu barst liðsauki og var Högni Kjartan yfirbugaður í kjölfarið.

Högni Kjartan lúber pólska lögreglumenn

Niðurstaða málsins var sú að Högna Kjartani var gert að greiða sekt upp á þrettán þúsund pólsk slot vegna málsins, sem samsvarar um 450 þúsund krónum. Þá urðu átökin til þess að endurskoða átti þjálfun pólskra lögreglumanna.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“