fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

„Við lítum þessar ásakanir mjög alvarlegum augum“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 16. janúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Deloitte á Íslandi hefur skipað Signýju Magnúsdóttur sem forstjóra til bráðabirgða. Þessi ákvörðun kemur í kjölfarið á ákæru sem Héraðssaksóknari hefur gefið út á hendur Þorsteini Pétri Guðjónssyni forstjóra.

Eins og greint var frá í gær hefur hann verið ákærður fyrir kynferðisbrot og verður málið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness eftir helgi.

„Við lítum þessar ásakanir mjög alvarlegum augum og höfum komist að samkomulagi við Þorstein Pétur um að hann stígi til hliðar. Við munum ekki tjá okkur frekar um málið á meðan það er til meðferðar hjá dómstólum,“ segir í yfirlýsingu sem barst frá Deloitte á tólfta tímanum í gærkvöldi.

Sjá einnig: Forstjóri Deloitte á Íslandi ákærður fyrir kynferðislega áreitni

„Stjórn félagsins hefur skipað Signýju Magnúsdóttur forstjóra til bráðabirgða. Við munum hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og hugsa vel um fólkið okkar,“ sagði enn fremur í yfirlýsingunni.

Vísir greindi frá því í gær að Þorsteini væri gefið að sök að hafa veist að ungri konu á Hótel Rangá í maí árið 2023. Samkvæmt heimildum Vísis reyndi Þorsteinn að kyssa konuna gegn hennar vilja og káfa á kynfærum hennar innanklæða. Hafi hann ekki látið af háttseminni fyrr en vinkona brotaþola stöðvaði hann.

Þorsteinn sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann sagði að ásakanirnar ættu sér enga stoð í raunveruleikanum. Ákæran væri honum mikið áfall og hann treysti því að á endanum muni staðreyndirnar tala sínu máli og sannleikurinn koma í ljós.

Sjá einnig: Þorsteinn svarar ásökun á hendur sér og stígur til hliðar – „Mér mikið áfall“ 

„Þann 13. maí 2023 hélt ég ásamt kollegum mínum vinnufund á Hótel Rangá. Það kvöld gerðist einfaldlega ekkert af því sem lýst er í stuttri ákæru sem mér var birt og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum. Ég áreitti enga, engin átök áttu sér stað og þaðan af síður ógnaði ég einhverjum. Ég hef aldrei brotið gegn nokkurri manneskju og sver af mér alla óviðeigandi hegðun. Þess vegna átti ég von á því að málið yrði látið niður falla enda uppspuni frá rótum,“ sagði hann meðal annars og sagðist hafa leitað réttar síns og kært viðkomandi fyrir rangar sakargiftir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”