fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Krónan lækkar verð á Grøn Balance vörum um 10%

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 16. janúar 2026 12:39

Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Krónan hefur lækkað verð á öllum vörum frá vörumerkinu Grøn Balance um 10 prósent. Um er að ræða verðlækkun á um 200 lífrænum og vottuðum vörum sem ná yfir matvöru, barnavöru og hreinlætis-, húð- og heimilisvörur. Verðlækkunin byggir á markvissri hagræðingu í innkaupum og er jafnframt hluti af langtímastefnu Krónunnar um að bjóða eigin vörumerki á sem hagkvæmasta verði. Verðlagningin verður reglulega endurmetin með hliðsjón af kostnaði og markaðsaðstæðum eins og segir í tilkynningu. 

Vörur frá Grøn Balance sem hafa nú lækkað um 10 prósent.

Að sögn Guðrúnar Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, er mikilvægt að bregðast við þeirri stöðu sem mörg íslensk heimili standa frammi fyrir í núverandi efnahagsumhverfi. Það á sérstaklega við þegar kemur að daglegum innkaupum, þar sem útgjöld heimila hafa aukist og sífellt meira sem þarf að vega og meta.

„Þessi verðlækkun endurspeglar þá vinnu sem miðar að því að halda kostnaði niðri, nýta svigrúm til að lækka verð á vörum sem Krónan flytur sjálf inn og skila þar með hagstæðara innkaupsverði til viðskiptavina. Við viljum einnig auðvelda fólki innkaup sem sameina hagkvæmni, gæði og ábyrgð gagnvart umhverfi og heilsu en það er einmitt það sem Grøn Balance stendur fyrir. Framtakið endurspeglar ennfremur markmið okkar um að lyfta upp lífrænum og heilnæmum vörum og gera þær sýnilegri og aðgengilegri breiðari hópi. Vörurnar eru allar vottaðar og uppfylla strangar kröfur um umhverfis- og neytendavernd, þar á meðal lífræna vottun á matvörum. Það er því virkilega ánægjulegt að geta boðið þessar vörur á lægra verði en áður,” segir Guðrún.

Vörur frá Grøn Balance sem hafa nú lækkað um 10 prósent.

Hlutfall lífrænna og sjálfbærra innkaupa á Íslandi er enn lágt í samanburði við önnur Norðurlönd. Samkvæmt samtökunum Lífrænt Ísland er um eitt prósent landbúnaðar á Íslandi með lífræna vottun, á meðan markaðshlutdeild lífrænna vara í Danmörku er rétt undir 12 prósentum samkvæmt skýrslu The World of Organic Agriculture frá 2024. Þetta bendir til þess að á Íslandi séu tækifæri til aukinnar vitundar og þróunar á sviði lífrænna valkosta.

„Það sem við veljum ofan í matarkörfuna okkar hefur áhrif og jafnvel litlar breytingar í daglegum innkaupum geta haft mælanleg áhrif til lengri tíma, bæði hvað varðar umhverfi og heilsu. Við viljum leggja okkar af mörkum til að slík innkaup séu aðgengileg, einföld og fyrst og fremst hagkvæm fyrir íslensk heimili,” segir Guðrún.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”