fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þorsteinn svarar ásökun á hendur sér og stígur til hliðar – „Mér mikið áfall“ 

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 15:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og greint hefur verið frá í fréttum í dag hefur forstjóri Deloitte á Íslandi, Þorsteinn Pétur Guðjónsson, verið ákærður fyrir kynferðisbrot. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness þann 20. janúar.

Sjá einnig: Forstjóri Deloitte á Íslandi ákærður fyrir kynferðislega áreitni

Lögmaður Þorsteins, Ólafur Eiríksson hrl., sendi fjölmiðlum yfirlýsingu frá Þorsteini. Í henni segir hann ásakanir ekki eiga sér neina stoð, ákæran sé honum mikið áfall og hann treysti því að á endanum muni staðreyndirnar tala sínu máli og sannleikurinn koma í ljós. Þorsteinn hefur kært viðkomandi fyrir rangar sakargiftir. Þorsteinn mun stíga til hliðar sem forstjóri Deloitte þar til málið er til lykta leitt.

Eftirfarandi er yfirlýsing Þorsteins í heild sinni:

Það er mér mikið áfall að ákært hafi verið vegna ásakana á hendur mér sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Þann 13. maí 2023 hélt ég ásamt kollegum mínum vinnufund á Hótel Rangá. Það kvöld gerðist einfaldlega ekkert af því sem lýst er í stuttri ákæru sem mér var birt og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum. Ég áreitti enga, engin átök áttu sér stað og þaðan af síður ógnaði ég einhverjum. Ég hef aldrei brotið gegn nokkurri manneskju og sver af mér alla óviðeigandi hegðun. Þess vegna átti ég von á því að málið yrði látið niður falla enda uppspuni frá rótum.

Ég treysti því að á endanum muni staðreyndirnar tala sínu máli og sannleikurinn koma í ljós. Hef ég í þeim tilgangi leitað réttar míns og kært viðkomandi fyrir rangar sakargiftir. Á meðan þetta mál er til lykta leitt stíg ég til hliðar sem forstjóri Deloitte.

Ég mun ekki tjá mig frekar um málið á meðan það er rekið fyrir dómstólum.

Þorsteinn Pétur Guðjónsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”