fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Myndband frá Íslandi vekur gríðarlega athygli

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Íslandi er allra veðra von og þó að vetur konungur hafi verið ljúfur við íbúa á suðvesturhorni landsins nú í janúar hefur hann látið meira að sér kveða í öðrum landshlutum.

Myndband sem tekið var nýlega og sýnir bíl á bólakafi í snjóskafli hefur vakið athygli út fyrir landsteinana.

Vitalijus Barauskas birti myndbandið á Facebook-síðu sinni síðastliðinn föstudag þar sem það hefur fengið mikið áhorf. Þannig hafa um 45 þúsund notendur sett svokallað „tjákn“ við myndbandið á síðu hans.

Þá birti bandaríski fréttamiðillinn ABC myndbandið á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi og hefur það fengið hátt í 100 þúsund áhorf þar. Miðað við athugasemdir við myndbandið eru margir Bandaríkjamenn hissa á snjómagninu og furða sumir sig á því hvernig Íslendingar komast eiginlega leiðar sinnar.

„Ég myndi þurfa að flytja,“ segir einn sem kveðst búa í New Orleans. „Mér verður skítkalt í 20 stiga hita,“ bætti hann við. „Ég myndi fá mér vinnu þar sem ég get verið heimavinnandi,“ segir annar. „Ég elska snjó en þetta er aðeins of mikið,“ segir svo enn annar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”