fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Guðmundur Felix á tímamótum: „Það væri ekkert að gerast nema fyrir þetta“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 07:43

Guðmundur Felix og eiginkona hans, Sylwia. Ljósmynd: Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm ár eru nú liðin síðan Guðmundur Felix Grétarsson fékk grædda á sig nýja handleggi. Á þeim tíma sem liðinn er hefur hann mætt ýmsum áskorunum en hann segir að baráttan hafi svo sannarlega verið þess virði.

Hann ræddi þetta við RÚV í gær.

Aðgerðin markaði tímamót í læknavísindunum og hefur bataferlið, ef svo má segja, verið langt og strangt. Hann hefur gengist undir nokkrar aðgerðir og þá hefur hann þurft að vera á stórum steraskömmtum sem hafa haft sín áhrif.

Í viðtalinu kemur fram að sterarnir hafi slæm áhrif á bein og þurfti hann að fá nýja mjöðm í desember síðastliðnum.

Guðmundur segir í viðtalinu að hann geti borðað sjálfur, baðað sig, burstað tennurnar og klætt sig en virknin sé skert í höndum og framhandleggjum. Miðað við fullfríska handleggi sé virknin því takmörkuð en breytingin sé mikil frá því sem áður var.

Það eru spennandi tímar fram undan hjá Guðmundi en hann stofnaði nýverið fyrirtæki og hyggst flytja inn og selja búnað fyrir snjallheimili.

„Ég er í rauninni núna, 28 áum seinna, að fara aftur inn í fagið sem ég lærði upphaflega, þar sem rafvirkjunin nýtist mér. Og það væri ekkert að gerast nema fyrir þetta.“

Hér má sjá umfjöllun RÚV í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum