fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fékk óvenjulega heimsókn frá Matvælaeftirlitinu – „Þetta er ekki eitthvað sem maður lendir í á hverjum degi“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðfinnur Sölvi Karlsson, rekstraraðili rokkbarsins Lemmy, hefur aldrei lent í öðru eins en á dögunum mættu fulltrúar frá Matvælaeftirlitinu á barinn og lýstu yfir áhyggjum af því að fiskarnir sem þar dvelja séu ekki nógu lukkulegir með rokkið. Guðfinnur, sem er betur þekktur sem Finni, ræddi málið hjá Bítinu á Bylgjunni í morgun.

„Maður hefur lent í öllu í bransanum en ég hef aldrei lent í þessu,“ sagði Finni sem rifjaði upp að aðilar frá Matvælaeftirlitinu hafi komið til að kanna stöðuna á fiskunum og hvort þeir væru nokkuð að ærast úr hávaða.

Finni tekur fram að fiskabúrið er ekki þar sem mesti hávaðinn er heldur í einangruðu rými sem er lokað frá öðru rými með sérstökum glugga. Hann tók þó vel í áhyggjur Matvælaeftirlitsins og ætlar að mæla hljóðstyrk við búrið á rokktónleikum um helgina.

„Allt í góðu að vita hvort þeir séu að drepast úr leiðindum,“ segir Finni en bætir við að fiskarnir virðist hafa það gott, þeir séu í fullu fjöri, stækki vel og fjölgi sér hratt. Telur Finnur að virkt ástarlíf fiskanna gefi til kynna að þeim leiðist ekki rokkið heldur þvert á móti. Þessi heimsókn hafi þó komið honum verulega á óvart og hann vonar að hávaðinn sé fiskunum bærilegur svo þeir þurfi ekki að segja skilið við rokkbarinn.

„Þetta er ekki eitthvað sem maður lendir í á hverjum degi, að það sé einhver að koma og segja að fiskarnir séu kannski ekki mikið fyrir rokktónlist.“

Finni segist vona að allt fari vel enda var honum tilkynnt að ef fiskarnir eru óhamingjusamir í rokkinu þyrfi að aflífa þá með aðferð sem er viðurkennd og mannúðleg, með hljóðbylgjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“