fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Nafngreina fyrirtæki sem leggja á vanskilagjöld – Óþarft, ósanngjarnt og á mjög gráu svæði

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við skorum á ofangreind fyrirtæki að hætta tafarlaust að leggja á vanskilagjöld! Jafnframt skorum við á eigendur bílastæða að skipta aðeins við fyrirtæki sem ekki leggja á vangreiðslugjöld!“

Þetta segja þeir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, og Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, í aðsendri grein á Vísi.

Þar kalla þeir eftir því að fyrirtæki sem innheimta gjöld vegna bílastæða hætti að innheimta svokölluð vanskilagjöld sem eru oft í engu samræmi við raunverulegt tjón fyrirtækjanna.

Megn óánægja

Í grein sinni benda þeir á að á bílastæðum sem nota þjónustu Checkit.is séu engin vangreiðslugjöld innheimt.

„Þar undir eru meðal annars Þingvellir, Seljalandsfoss, Höfðatorg, Selafjaran og Hafnarhólmi. Ef ökumaður gleymir eða vanrækir að borga fyrir bílastæði fær hann senda kröfu í heimabanka. Upphæðin er sú hin sama og hann hefði átt að borga fyrir notkun stæðisins, ásamt 130 króna bankakostnaði. Það er allt og sumt. Ekkert vangreiðslugjald, engar hótanir.“

Sjá einnig: Kanadískur ferðamaður hneykslaður á bílastæðagjöldunum á Íslandi

Segja þeir Breki og Runólfur að eftir þeirra upplýsingum skili greiðslur sér allt að 100%. Fólk sé nefnilega almennt tilbúið að borga fyrir veitta þjónustu. Að sama skapi sætti fáir sig við óútskýrð refsigjöld sem birtast fyrirvaralaust í heimabanka, dráttarvexti og innheimtukröfur fyrir einfaldar yfirsjónir eða gleymsku vegna afnota bílastæða.

„Þannig vinna Parka, Myparking, Sannir landvættir, Green parking og Autopay. Útbreidd gremja ríkir vegna þessara vinnubragða og stjórnvöld undirbúa nú aðgerðir. Sátt myndi ríkja um Checkit.is leiðina. Engin vangreiðslugjöld, engar hótanir. Hið eina rétta er því að hætta að rukka vangreiðslugjöld.”

Svona vinna þessi fyrirtæki

Breki og Runólfur segja að vangreiðslugjaldið sé eftirlíking af bílastæðasektunum hjá Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélögum sem eiga sér skýra stoð í lögum. Lög heimili hins vegar ekki að einkaaðilar beiti sektum.

„Til þess að innheimta vangreidd gjöld styðjast heiðvirð fyrirtæki við innheimtulög. Vangreiðslugjald bílastæðabraskaranna er miklu hærra en innheimtulög leyfa. Þau er óhæfilega há og í engu samræmi við meint tjón fyrirtækjanna eða kostnað þeirra, heldur eru þau lögð á til tekjuöflunar. Gjöldin eru því ósanngjörn og andstæð góðum viðskiptavenjum,“ segja þeir.

Sjá einnig: Gullgrafaraæði á bílastæðamarkaði:FÍB áætlar að tekjurnar hafi verið svona háar í fyrra

Þá benda þeir á að aðeins hafi verið rukkað fyrir bílastæði við sex ferðamannastaði fyrir fjórum árum.

„Sölumenn Parka/Myparking og Öryggismiðstöðvarinnar (Sannir landvættir og Green parking) hafa hins vegar herjað af krafti á landeigendur við aðra ferðamannastaði. Sölumennirnir hafa boðið ókeypis uppsetningu á gjaldtökubúnaði og fría innheimtu á stæðisgjöldum. Í staðinn fá bílastæðafyrirtækin hlut í stæðisgjaldinu og allt vangreiðslugjaldið. Fáir landeigendur slá hendinni á móti þessu. Afleiðingin er sú að nú er gjaldskylda á 44 bílastæðum á ferðamannastöðum, þar af eru 6 hjá Checkit.is.“

Breki og Runólfur segja að lokum í grein sinni að vangreiðslugjald sé óþarft, ósanngjarnt og á mjög gráu svæði lagalega og tekjulind í sjálfu sér.

„Án hinnar ágengu sölumennsku má leiða líkur að því að sátt ríkti hér á landi um greiðslur fyrir afnot bílastæða þar sem þeirra er raunverulega þörf. Við skorum á ofangreind fyrirtæki að hætta tafarlaust að leggja á vanskilagjöld! Jafnframt skorum við á eigendur bílastæða að skipta aðeins við fyrirtæki sem ekki leggja á vangreiðslugjöld!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“