

Logi lýsir þessu í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.
Logi bendir á að rúm 30 ár séu síðan síðan fjölskylda hans flutti til Íslands og tilviljun hafi í raun ráðið því. „Ég var þriggja ára þegar ég kom, hér ól ég manninn, og hér ætla ég að vera,“ segir hann.
Hann bendir á að margt hafi breyst í borginni þessa þrjá áratugi en hann geti með sanni sagt að það sé gott að búa í Reykjavík.
„En það eru tímamót framundan í borginni. Þrátt fyrir skýran árangur og gott gengi undanfarin ár eru þó nokkur mál sem við borgarbúar viljum að séu tekin fastari tökum,“ segir hann og nefnir skipulagsmál og leikskólamál til dæmis.
„Við þurfum að létta á reglugerðum, knýja fólk og fyrirtæki áfram til góðra verka, og passa vel upp á stemmninguna í samfélaginu okkar. Og þess vegna held ég að það sé kominn tími til að rétta keflið áfram og hleypa nýju fólki að,“ segir hann.
Logi bendir á að á síðasta ári hafi verið komin ókyrrð í hann og marga í kringum hann.
„Pólítíska landslagið á Íslandi hefur breyst, og meiri harka komin í umræðuna. Fjarhægrið sækir áfram á ótta og reynir að hræða fólk til sín. Þar er statt og stöðugt verið að dæla út mannfjandsamlegum skoðunum, og skrattinn er málaður á vegginn við hvert tækifæri. Það liggur fyrir að íslenskt samfélag muni mæta stórum áskorunum næstu ár og áratugi. En valið liggur hjá okkur hvort við mætum þeim áskorunum með jákvæðni, styrk og seiglu, eða niðurbroti og neikvæðni. Ég þekki vel þann kima samfélagsins sem niðurrifsöflin reyna að tala niður og ég veit að þar liggja gullin tækifæri til að styrkja okkar samfélag og gera það ríkara og betra.“
Til að mæta þessum áskorunum segir Logi að við þurfum fólk sem getur tekið slaginn.
„Einstaklinga sem treysta sér að taka umræðuna af festu, á uppbyggjandi hátt og leyfa sér að benda á styrkleikana. Og þess vegna tók ég upp á því hjá sjálfum mér að hringja í Pétur Marteinsson seint á síðasta ári, til að hvetja hann til að stíga inn í pólítíkina,“ segir hann og fer fögrum orðum um hann.
„Pétur er leiðtogi. Reynslumikill rekstrarmaður og íþróttakappi, sem mætir til dyranna eins og hann er klæddur, mennskur og brosandi. Hann stendur í lappirnar, situr vel í sér og leyfir sér að vera jákvæður.“
Logi segir að reynsla Péturs af því að styrkja nærumhverfi sitt sé dýrmæt og nefnir hann Kaffi Vest og Kex Hostel í því samhengi. Þá hafi hann reynslu af skipulagsmálum.
„Pétur þekkir því vel til almannarýma, en það er fátt mikilvægara fyrir samfélag á norðurhjara veraldar en að eiga sterk „þriðju rými“, eða rýmin fyrir utan heimili og vinnu. Hvort sem það eru sundlaugarnar okkar, íþróttafélögin eða félagsmiðstöðvarnar þá er skýrt að þessi almannarými þar sem við mætum hvort öðru eru hryggjarstykkið í sterku og samheldnu samfélagi, og sömuleiðis lykilþáttur í því að bjóða aðfluttum íbúum að koma inn og taka þátt. Rýmin þar sem mennskan fær pláss og við horfum í augun á hvort öðru. Og þetta eru hlutir sem við Pétur höfum rætt okkar á milli, hvernig við getum styrkt nærumhverfið, stuðlað að blómlegu íþrótta- og tómstundalífi, og knúið áfram lifandi menningarumhverfi,“ segir Logi í grein sinni.
Logi endar grein sína á að benda á að við búum í einstöku samfélagi og mikilvægt sé að hvetja leiðtogana okkar áfram til góðra verka.
„Að þau standi við það sem þau segi og að þau mæti áskorunum á uppbyggjandi og jákvæðan hátt. Að þau haldi í heiðri mátt orðsins, af því það hvernig við tölum og hvernig við tjáum okkur skiptir höfuðmáli. Og þess vegna hvet ég þig til að kjósa Pétur.“