

Fjallað er um þetta mál í Morgunblaðinu í dag en þar kemur fram að Fylkir telji sig eiga inni 260 milljónir króna frá borginni.
Í frétt blaðsins kemur fram að borgin hafi fengið lóðir við Hraunbæ undir íbúðir og í Fylkir hafi á móti fengið nýjan völl og pening til að klára áhorfendastúku. Þá kemur fram að samningurinn hafi einnig tryggt Fylki hluta af lóðaverði til að nota í aðra uppbyggingu hjá félaginu.
Þar stendur hnífurinn í kúnni og segir Björn Gíslason, formaður Fylkis og borgarfulltrúi, að byggðar hafi verið yfir 200 íbúðir en ekki hafi verið gert upp við félagið.
„Þetta er átta ára gamalt mál og er eiginlega alveg fáránlegt. Menn eru búnir að fá nóg,“ segir Björn við Morgunblaðið. Hann gagnrýnir að ekkert hafi heyrst frá borginni og til hafi staðið að funda um málið í fyrrasumar. Sá fundur fór ekki fram og segir Björn að beiðni um annan fund hafi verið margítrekuð en borgin ekki brugðist við.
Af þessum sökum hefur verið ákveðið að höfða mál.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.