fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fór reiður í bíltúr eftir að hafa verið synjað um endurveitingu ökuréttinda

Ritstjórn DV
Mánudaginn 12. janúar 2026 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir glæfraakstur á Hellisheiði í janúar árið 2025, en þá ók hann vísvitandi utan í annan bíl sem hafnaði við það utan vegar. Maðurinn var í vondu skapi þennan dag þar sem honum hafði verið synjað um endurveitingu ökuréttar.

Ákærði á sakaferil sem nær allt aftur til ársins 1990 og hafði ítrekað verið sviptur ökuréttindum ævilangt. Í janúar árið 2024 fékk hann símtal um að hann fengi ekki endurveitingu ökuréttar og kom það honum í uppnám og ójafnvægi. Hann tók þá bifreið móður sinnar í leyfisleysi og ók henni glannalega.

Brotaþoli lýsti því þannig að hann hefði verið að aka austur Hellisheiði á kafla þar sem vegurinn er tvöfaldur. Hann var á um 90 kílómetra hraða og á vinstri akrein að taka fram úr annarri bifreið þegar önnur bifreið kom alveg upp að afturenda bifreiðar hans og byrjaði að flauta. Brotaþoli gat ekki fært sig til hægri þar sem þar var bifreiðin sem hann var að taka fram úr. Honum tókst svo að klára framúraksturinn en þá kom bifreiðin fyrir aftan vinstra megin við hann og keyrði viljandi utan í hann. Við þetta hafnaði brotaþoli utan vegar. Taldi brotaþoli að ökumaður hinnar bifreiðarinnar hafi þar verið að sýna að hann væri ósáttur við að komast ekki strax fram úr.

Neitaði fyrst, játaði svo en  tók það síðar til baka

Lögregla ræddi við ákærða sem kannaðist ekkert við atvikið og sagðist ekki hafa verið að aka þennan dag. Nokkru seinna mætti ákærði þó að eigin frumkvæði á lögreglustöðina á Selfossi og breytti fyrri framburði. Þennan dag hafi hann verið reiður yfir að fá ekki ökuréttindin aftur og því hafi hann tekið bíl móður sinnar og ekið til Reykjavíkur. Þegar hann var lagður af stað austur hafi hann tekið erlendan ferðamann upp í bifreiðina og sá gaf honum smávegis kannabisefni. Ferðamaðurinn hafi farið út í Norðlingaholt.

Skemmt frá hafi ákærði misst einbeitinguna augnablik og ekið mjög hægt aftan á BMW-bifreið sem þar var kyrrstæð og svo ekið burt án þess að tilkynna tjónið því hann var ökuréttindalaus. Svo ók hann áfram austur. Þar hafi verið jeppi á miðjum vegi sem hafi ekki gefið honum færi á að komast fram úr. Ákærði hafi því reiðst og vísvitandi ekið létt utan í heppann.

Fyrir dómi hafði ákærði þó aftur breytt framburði sínum. Hann sagðist játningu sína vanhugsaða og gefna í fljótfærni. Játningin hefði verið röng. Hið rétta væri að ekki hefði verið um viljaverk að ræða.

Dómari rakti að óumdeilt væri að bifreiðarnar tvær hefðu rekist saman umræddan dag, enda voru þær báðar laskaðar. Eins hafði ákærði þrívegis gefið skýrslu og allar væru skýrslurnar ólíkar innbyrðis. Þar með væri ákærði ekki trúverðugur.

Þar með hefði ákærði gerst sekur um að hafa á ófyrirleitinn hátt stofnað lífi eða heilsu ökumanns hinnar bifreiðarinnar í augljósan háska. Brotið væri ófyrirleitið og ekki ákærða að þakka að ekki fór verr. Ákærða hafi ekki getað dulist að aksturslag hans gæti auðveldlega stofnað lífi og heilsu brotaþola í háska.

Markleysa að svipta ökurétti

Ákæruvaldið fór fram á sviptingu ökuréttinda. Dómari féllst ekki á það.

„Fyrir liggur að ákærði er sviptur ökurétti ævilangt og var sú svipting áréttuð síðast með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 12. nóvember 2014. Með hliðsjón af þessu væri markleysa að mati dómsins að svipta ákærða nú tímabundið ökurétti. Hins vegar þykja ekki vera alveg næg efni til að árétta ævilanga ökuréttarsviptingu ákærða nú og verður því látið sitja við þá ævilöngu sviptingu ökuréttar sem hann nú sætir.“

Eins kom fram að seinasta brot ákærða samkvæmt sakavottorði væri frá árinu 2017 en rétt þótti þó að geta þess að þann 11. desember 2025 gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun þar sem honum var gert að greiða 360 þúsund króna fésekt til ríkissjóðs fyrir sviptingarakstur og of hraðan akstur 20. júlí 2024 og sviptingarakstur 17. janúar 2025.

Dómurinn féll í Héraðdómi Suðurlands þann 7. janúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”