
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur komist að þeirri niðurstöðu að sterkar vísbendingar séu uppi um að lögreglumaður sem starfaði hjá lögreglunni á Suðurlandi hafi sýnt af ámælisverða háttsemi með því að hafa, á meðan hann var á vakt að nóttu til, hringt í konu til að ræða við hana um hvernig umgengni barnsföður hennar við börn þeirra yrði háttað næsta dag. Sagðist konan hafa áhyggjur af að barnsfaðir hennar skyldi geta beitt lögreglunni fyrir sig með þessum hætti.
Konan sendi kvörtun til nefndarinnar í júlí á síðasta ári. Þar kom fram að aðfaranótt 30. júní hafi lögreglumaðurinn hringt í hana í þrjú skipti á milli klukkan 02:30 og 03:30 til að fá upplýsingar um hvernig fyrirkomulagi umgengni barnsföður hennar við börnin yrði háttað en barnsfaðirinn átti að fá börnin til sín daginn eftir. Óskaði lögreglumaðurinn eftir að konan myndi afhenda barnsföðurnum börnin fyrr um daginn en um hafði verið samið. Tók konan fram í kvörtuninni að hún hefði áhyggjur af því að barnsfaðir hennar hafi getað notað lögregluna með þessum hætti til þess að hræða hana og beita valdi.
Hvort einhver persónuleg tengsl séu á milli lögreglumannsins og barnsföðurins kemur ekki fram í ákvörðun nefndarinnar.
Nefndin óskaði eftir svörum frá embætti lögreglustjórans á Suðurlandi. Í svarinu kom fram að lögreglumaðurinn hafi ekki stofnað neitt mál vegna símtalanna í tölvukerfi lögreglunnar LÖKE. Haft hafi þá verið samband við varðstjóra sem var á vakt umrædda nótt. Hafi hann staðfest málavexti með tölvupósti sem embættið sendi nefndinni. Einnig kom fram að umræddur varðstjóri hefði látið af störfum.
Það virðist því sem að þessi varðstjóri hafi verið sá sem hringdi í konuna um nóttina en í niðurstöðu nefndarinnar segir að með hliðsjón af málavöxtum telji nefndin að uppi séu sterkar vísbendingar um að umræddur lögreglumaður hafi viðhaft ámælisverðar starfsaðferðir í málinu. Þar sem hann hafi látið af störfum hjá lögreglunni á Suðurlandi séu hins vegar ekki forsendur fyrir því að aðhafast frekar vegna kvörtunar konunnar.