
Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir kynferðislega áreitni vegna atviks frá 13. maí árið 2023. Er maðurinn sakaður um að hafa kysst stúlku gegn vilja hennar og skömmu síðar hlaupið að henni, ýtt henni upp við vegg, sett tunguna upp í munn hennar, sett höndina inn fyrir nærbuxur hennar og káfað á kynfærum hennar innanklæða.
Lét maðurinn ekki af þessari háttsemi fyrr en vinkona brotaþola kom á vettvang, reif í jakka hans og öskraði á hann. Í ákæru segir að háttsemi ákærða hafi verið meiðandi í garð brotaþola og til þess fallin að vekja hjá henni ótta um líf, heilbrigði og velferð hennar.
Brotaþoli gerir kröfu um hálfa milljón króna í miskabætur. Héraðssaksóknari krefst þess hins vegar að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls málskostnaðar.
Aðalmeðferð í málinu verður við Héraðsdóm Reykjaness þann 20. janúar. Þinghald er lokað eins og algengt er í kynferðisbrotamálum.