Fréttir

Svavar segir flokkinn sinn frávik: „Ég studdi þetta ferli þá og ég styð það núna“

Mynd
Svavar Halldórsson og Guðrún Hafsteinsdóttir. Samsett mynd/XD

Svavar Halldórsson, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur og flokksbundinn Sjálfstæðismaður, segir að afstaða síns flokks um að vera á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið sé frávik frá sambærilegum stjórnmálaflokkum í Evrópu, sjálfur ætli hann að kjósa já við aðildarviðræðum næstkomandi laugardag.

Svavar, sem starfar sem ráðgjafi í dag en var áður fréttamaður og framkvæmdastjóri Landssambands sauðfjárbænda, segir í grein á Vísi í dag að Sjálfstæðisflokkurinn hafi frá árinu 2023 verið aðili í European People's Party, EPP, flokkafjölskyldu evrópskra mið-, hægri- og kristilegra lýðræðisflokka, tveimur árum eftir að flokkurinn sagði sig úr ECR, samtök ESB-gagnrýnna íhaldsflokka, sem Miðflokkurinn tilheyrir. 

„Í EPP er afstaðan skýr. Moderaterna í Svíþjóð, Kokoomus í Finnlandi og Konservative í Danmörku styðja aðild ríkja sinna að Evrópusambandinu. Í Noregi, landinu sem líkist okkar mest, með EES-samning, eigin gjaldmiðil og stóran sjávarútveg, vill Høyre að landið gangi í Evrópusambandið. Høyre hefur nákvæmlega sömu stöðu innan EPP og Sjálfstæðisflokkurinn,“ segir Svavar.

„Þetta eru hægrimenn sem hafa metið hagsmuni sinni þjóða og komist að þeirri niðurstöðu að í heimi hernaðarógnar úr austri og árása á frjáls milliríkjaviðskipti úr vestri, sé betra að vera hluti af Evrópusambandinu en utan þess.“

Á laugardaginn sé ákvörðun um að afla sér upplýsinga

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið afdráttarlaus í afstöðu sinni að hún telji óráð að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið en einnig sagt að hún muni leitast við að tryggja íslenska hagsmuni ef af aðildarviðræðum verður. 

Sjá einnig: Klaufaleg samlíking Guðrúnar vekur athygli

Svavar bendir á að um helgina verði ekki kosið um aðild Íslands að Evrópusambandinu heldur hvort það eigi að hefja aðildarviðræður sem úr kemur samningur sem fer síðan í aðra þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Þetta er það sama og Bjarni Benediktsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til fyrir rúmum áratug. Ég studdi þetta ferli þá og ég styð það núna,“ segir Svavar.

„Á laugardaginn ákveðum við því ekkert annað en hvort við ætlum að afla okkur upplýsinga áður en ákvörðun er tekin um aðild að Evrópusambandinu..“

Afstaða forystu Sjálfstæðisflokksins gegn því að fara í viðræður sé frávik frá því sem nánustu systurflokkar í Evrópu telja skynsamlegt. 

„Ég er frjálslyndur evrópskur hægrimaður og flokksbundinn Sjálfstæðismaður. Ég ætla að segja já — já við viðræðum, já við upplýstri ákvörðun og já við því að þjóðin fái sjálf að eiga lokaorðið. Ef samningurinn verður lélegur, segi ég að sjálfsögðu nei.“