Fréttir

Þórður Snær er sammála Bjarna, Guðrúnu og Sigmundi Davíð í fortíðinni: „Snýst eins og vindhanar eftir persónulegum pólitískum hentugleika“

Mynd
Bjarni Benediktsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Þórður Snær Júlíusson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Samsett mynd.

Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að samningsstaða Íslands gagnvart Evrópusambandinu hafi styrkts verulega frá því að formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins kölluðu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Segir hann fámennan hóp snúast eins og vindahana eftir persónulegum pólitískum hentugleika.

Í ítarlegri grein á Vísi í dag vitnar Þórður Snær í orð Bjarna Benediktssonar, þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, frá árinu 2009 og 2013, og orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáverandi formanns Framsóknarflokksins og núverandi formanns Miðflokksins. 

Þórður Snær hefur greinina á tilvitnun í Bjarna þegar hann var í viðtali við Fréttablaðið í mars 2009 þegar hann var í kosningabaráttu um formannssæti Sjálfstæðisflokksins. 

„Ég tel að í gjaldmiðilsmálum sé enginn valkostur við krónuna jafn sterkur og evran með ESB-aðild. Ég vil að við göngum hreint til verks í þessum málum og gerum upp á milli valkosta á næstu árum, en séum ekki að leika marga biðleiki. Ég er talsmaður þess að við tökum afstöðu til Evrópusambandsaðildar. Ég vil að þjóðin öll komi að því að taka afstöðu til þess hvort sá efnahagslegi stöðugleiki sem fengist með evru, sé eftirsóknarverður kostur með tilliti til þeirra fórna sem færa þarf.“

Skal þó halda til haga að Bjarni var þá að ræða um einhliða upptöku annarrar myntar en krónunnar, sagði Bjarni jafnframt í því viðtali að hann teldi hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins og hann hafi efasemdir um að það myndu takast ásættanlegir samningar um sjávarútvegsmál. 

Sammála Bjarna árið 2009

Þórður Snær segir að hann sé sammála Bjarna. Vísar hann svo í þegar sótt var um árið 2009 í krafti þingsályktunartillögu en ekki tvöfaldrar þjóðaratkvæðagreiðslu. 

„Flestir eru sennilega sammála um það í dag að þetta hafi verið mistök og veikt lögmæti ferilsins. Á meðal þeirra sem hafa þá skoðun er ég,“ segir Þórður Snær. „Þáverandi stjórnarandstaða, sem samanstóð að uppistöðu af Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, mótmælti því harðlega að þjóðin yrði ekki spurð hvort hún vildi fara í viðræður og lögð var mikil áhersla á að ákvörðunin lægi hjá henni. Á meðal þeirra var áðurnefndur Bjarni Benediktsson.“

Þá hafi hann, og einnig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir núverandi utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, lagt fram breytingartillögu um að þjóðaratkvæðagreiðsla ætti sér stað áður en sótt yrði um aðild. „Þetta var skynsamleg nálgun hjá Bjarna Benediktssyni,“ segir Þórður Snær. Bjarni hafi svo einnig nefnt þjóðaratkvæðagreiðslu til að leiða fram viljann í málinu í viðtali árið 2013. 

Báru fyrir sig pólitískan ómöguleika

„Sigmundur Davíð var líka enn á þeirri skoðun að þjóðin ætti að ráða og að það væri „engin spurning um að það þurfi að leyfa almenningi að koma að þessu“ og þegar hann skrifaði undir stjórnarsáttmála við Bjarna um sama efni: „Að sjálfsögðu kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu.” Þjóðin yrði að fá að ráða sínum Evrópuörlögum,“ segir Þórður Snær.

„Af þessu varð ekki. Þess í stað bar allt þetta fólk fyrir sig „pólitískan ómöguleika“ þegar það var komið í ríkisstjórn og gerði þess í stað hlé á viðræðunum með því að senda klaufalegt bréf. Hlé sem staðið hefur yfir fram til dagsins í dag.“

Sigmundur Davíð er í dag mjög á móti aðild: „Gangi Ísland í ESB, hvað sem líður sérlausnum í sjávarútvegi, er allt fyrirkomulagið til þess fallið að kippa fótunum undan grunnstoðum atvinnulífs um land allt (ég á eftir að fjalla um landbúnað og aðrar greinar) og þið skulið ekki halda að höfuðborgarsvæðið sé ótengt restinni af landinu og sleppi við tjónið,“ segir hann í færslu á Facebook.

Bjarni: Hagsmunamat ekki trúarbrögð

Bjarni er í dag á þeirri skoðun að Ísland ætti ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu en hann var í viðtali í Samstöðinni í gær, þá sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, þar sem hann ræddi um afstöðu sína í dag:

„Ég er þeirrar skoðunar að EES samningurinn sé það sem við þurfum í samskiptum við Evrópusambandið. Stundum þegar maður er að hlusta á umræðuna þá er eins og fólk haldi að þetta snúist um það hvort við séum í Evrópusambandinu eða úti á ballarhafi algjörlega ótengd. En það er grundvallarmunur að vera með EES-samninginn eða ekki og við teljum, sem erum þessarar skoðunar almennt, að það sé í raun og veru það að við í þessu tiltölulega fámenna landi getum ráðið úrslita málum á okkar eigin forsendum og eigin rammleik, það sé alveg gríðarlega dýrmætt og við eigum að halda í það í lengstu lög,“ sagði Bjarni. 

„Ég hef aldrei verið þeirrar skoðunar að þetta séu einhver trúarbrögð sko. Þetta er hagsmunamat. Og þær aðstæður geta skapast sem að þú verður að endurskoða hagsmunamatið en það þarf mjög mikið til að koma til þess að menn gefi frá sér þann þátt fullveldisins sem felst í því að stjórna þessum málum sjálf.“ 

Hafnar „vindhönum“

Þórður Snær vitnar einnig í núverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, sem árið 2014 hvatti til þjóðaratkvæðagreiðslu. „Og ég er sammála Guðrúnu Hafsteinsdóttur anno 2014 um að ég „treysti þjóðinni algerlega í þessu máli“, en þar af leiðandi að öllu leyti ósammála Guðrúnu Hafsteinsdóttur árið 2026 sem er komin á algjörlega gagnstæða skoðun,“ segir Þórður Snær.

„Ekki vera hrædd. Verið spennt. Fáum að vita hvað við getum fengið í stað þess að láta fámennan hóp, sem hefur sýnt að hann snýst eins og vindahanar eftir persónulegum pólitískum hentugleika, segja okkur að það sé ekkert lengur í boði. Þannig getum við tekið upplýsta afstöðu um framtíð Íslands.“