Karlmaður á fimmtugsaldri sem handtekinn var vegna rannsóknar á andláti karlmanns um sjötugt tengist honum fjölskylduböndum. RÚV greinir frá og hefur eftir heimildum, mennirnir eru báðir Íslendingar.
Sjá einnig: Í gæsluvarðhaldi vegna andláts karlmanns um sjötugt
E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir við RÚV að maðurinn hafi látist sunnudaginn 26. júlí í heimahúsi í Kópavogi. Lögregla hefur til skoðunar hvort sá sem var handtekinn hafi orðið eldri manninum að bana.
Fyrr í dag var greint frá því karlmaður á fimmtugsaldri hefði verið handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. ágúst. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í dag var gæsluvarðhaldið framlengt um fjórar vikur, eða til 2. september, á grundvelli almannahagsmuna, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Í kvöldfréttum RÚV kom fram að samkvæmt heimildum fréttastofu væru mennirnir feðgar. Sonurinn ætti sér langa sögu um andleg veikindi.