Fréttir

Ætlar að endurskoða lífstíðardóma – Ekkja lögreglumannsins æf

Mynd

Mörg þúsund fangar í Bretlandi gætu fengið frelsi sitt á ný eftir að Andy Burnham forsætisráðherra tilkynnti um allsherjarendurskoðun á lífstíðardómum. Ekkja lögreglumanns segist vera æf yfir því að morðingjar eiginmanns hennar geti aftur um frjálst höfuð strokið. 

Bretland hætti að gefa út lífstíðardóma, þ.e.a.s. fangelsisdóma án afplánunartíma, árið 2012 en þau lög giltu ekki afturvirkt sem þýðir að í dag eru um 2.400 fangar að afplána lífstíðardóma. Meðal þeirra er Leroy Douglas sem hefur setið inni í tæp tuttugu ár fyrir að stela farsíma og Shaun Anton Lloyd sem hefur afplánað tólf ár fyrir rán. 

Burnham hefur skipað Alex Norris dómsmálaráðherra að endurskoða dómana til að búa til meira pláss í fangelsum landsins, sem eru yfirfull. Passað verður sérstaklega upp á að kynferðisbrotamenn, þá sérstaklega barnaníðingar, verði undanskyldir. Í grein í Telegraph sagði Burnham að hann hefði viljað ganga enn lengra þar sem fangelsiskerfi landsins sé að hruni komið. Ásamt því að endurskoða lífstíðardómana verða fleiri fangelsisdómar endurskoðaðir til að skapa meira pláss. 

Lögreglumaðurinn Andrew Harper var skotinn til bana árið 2019, morðingjar hans, þeir Albert Bowers og Jessie Cole, eru meðal þeirra sem koma til greina að sleppa úr haldi til að skapa meira pláss. Ekkja Harper, Lissie, segir í yfirlýsingu að hún sé æf vegna þess. „Þetta er ógeðslegt. Ég er slegin og reið að heyra að morðingar Andrews gætu fengið að fara út,“ sagði Lissie. 

Harper lést þegar hann var í útkalli vegna stolins fjórhjóls, hann flæktist í reipi og var dreginn af Bowers og Cole eftir malarvegi. „Morðingjar hans hafa enga iðrun sýnt, þeir stálu framtíð okkar, þeir eru glæpamenn og eiga heima í fangelsi.“

Norris brást við yfirlýsingu Lissie í viðtali við Sky þar sem hann sagðist finna til með henni. „Þetta er ekki Lissie Harper að kenna, það er leitt að hún sé í þessari stöðu. En þetta er ákvörðun sem við urðum að taka til að passa upp á að við eigum fangelsiskerfi sem virki.“