Fréttir

Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir af hópárás í heimahúsi í Kópavogi

Mynd
Gabríel Douane Boama. Mynd: DV/KSJ

Sex karlmenn hafa verið sýknaður af ákæru um sérstaklega hættulega líkamsárás, húsbrot og eignarspjöll. Vísir greinir frá, dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Dómurinn hefur ekki verið birtur á vefsíðu dómstólanna.

Mennirnir voru sextán til nítján ára gamlir þegar meint árás var sögð hafa verið framin árið 2021, en mikill dráttur var á málinu. Einn mannanna er Gabríel Douane Boama, sem ítrekað hefur komist í kast við lögin undanfarin ár.

Sigurður Ólafsson, saksóknari hjá Héraðssaksóknara, segir að ekki liggi fyrir hvort málinu verði áfrýjað í samtali við Vísi.

Sagðir hafa beitt hömrum og hnífum

Í ákæru á hendur mönnunum sex sagði að þeir hafi verið ákærðir fyrir að hafa aðfaranótt laugardags í september 2021 ruðst í heimildarleysi inn í íbúð í húsi við Holtagerði í Kópavogi og veist þar með ofbeldi að fjórum mönnum sem þar voru staddir.

Sexmenningarnir hafi slegið og sparkað í höfuð hinna fjögurra víðs vegar um líkama þeirra og einnig veist að þeim með hættulegum vopnum og bareflum, þar á meðal hömrum og hnífum.

DV fjallaði um málið árið 2021. Nokkur hópur ungmenna var samankominn í samkvæmi í húsi í Holtagerði í Kópavogi í september árið 2021. Faðir piltsins sem hélt samkvæmið var rétt ókominn heim frá útlöndum. Einum gesta var vísað burtu. Skömmu síðar kom hann til baka ásamt hópi manna sem komu á nokkrum bílum að húsinu og brutu sér leið inn í það með hömrum sem þeir síðan létu dynja á fjórum mönnum í samkvæminu.

Samkvæmt ákæru í málinu sem birt var haustið 2025 voru árásarmennirnir vopnaðir hnífum, bareflum og hömrum. DV ræddi daginn eftir árásina við móður eins brotaþolans en árásarmenn höfðu látið hamarshögg dynja á honum. Slapp hann þó þolanlega frá árásinni, mun betur en á horfðist. „Þetta er ekkert annað en morðtilraun,“ sagði móðirin.

Sjá einnig: Réttarhöld hafin yfir Gabríel Douane og fimm öðrum vegna hryllingsárásar í Kópavogi

Samkvæmt ákæru voru mennirnir einnig sagðir hafa valdið ttjóni á húsnæðinu, meðal annars með því að brjóta gler í útidyrahurð, þannig að glerbrot féllu yfir og slösuðu þá sem fyrir innan voru, og skemmdu innihurð. Samkvæmt ákærunni hlutu þeir fjórir, sem áttu að hafa orðið fyrir meintu árásinni, ýmsa áverka.

Við aðalmeðferð málsins neituðu ákærðu ýmist neitað að tjá sig um málið, eða ekki sagst muna eftir því. 

Sjá einnig: Holtagerðismálið: Sakborningar svara ekki eða muna ekki – „Ég er með gullfiskaminni

Eins og áður var nefnt voru mennirnir sex sýknaðir með dómi héraðsdóms á mánudag.

Vísir segir og hefur eftir heimildum að sýkna hafi byggst á því að ekki voru nægar sannanir fyrir hendi um að mennirnir hafi framið meinta árás. Eins og áður sagði hefur dómurinn ekki verið birtur, fjallað verður nánar um hann og forsendur dómsins þegar hann hefur verið birtur.