Fréttir

Mannleg mistök að mygluðu jarðarberin voru gefins í Krónunni: „Misstuð þið af þessu kostaboði um helgina?“

Mynd
Skjáskot/Facebook

Netverji birti mynd af mygluðum jarðaberjum sem voru gefins í verslun Krónunnar í Hamraborg um helgina, í svari Krónunnar um þetta mál eru viðskiptavinir beðnir velvirðingar, þessum ávöxtum hafi átt að farga en vegna mannlegra mistaka hafi þeim verið stillt upp sem gefins.

„Misstuð þið af þessu kostaboði um helgina, frítt við útgang Krónunnar í Hamraborg?!,“ spyr málshefjandi í hópnum Vertu á verði á Facebook. Eru einnig sett spurningamerki við hvort jarðaberin hafi verið urðuð á lífrænan hátt. 

Mynd

Innleggið vakti mikil viðbrögð. Sæþór nokkur segir að þetta ætti að vera tilkynnt.

“Fyrir það fyrsta, þvílíkur viðbjóður að láta sér detta í hug að bjóða fólki upp á þetta.... og svo annað, hvað í andsk. er þetta eiginlega að gera enn í búðinni í þessu ástandi?”

Hjalti nokkur var ekki á sama máli. „Fínt til að planta. Hefði viljað ná þessu.“

Í umfjöllun Björns Sigurðar Gunnarsson matvæla- og næringarfræðings á Vísindavefnum segir að ef mygla sé sýnileg á matvælum þá sé almennt ráðlagt að henda viðkomandi matvæli. „Ef matvælið er þétt í sér og hart, eins og til dæmis harðir ostar, ætti þó að vera í lagi að skera mygluna í burtu, en þá þarf að gæta þess að hnífurinn sem notaður er til að skera mygluna burt komist ekki í snertingu við sjálfa mygluna til að koma í veg fyrir krossmengun,“ segir í umfjölluninni. 

Mygla sé þó yfirleitt skaðlaus en ákveðnar tegundir myglusveppa geti myndað sveppaeitur, þar að auki geti sumar tegundir framkallað ofnæmisviðbrögð og öndunarerfiðleika hjá viðkvæmum einstaklingum.

Fram kemur á vef Krónunnar að mikið sé lagt upp úr að draga úr matarsóun. Í svari Krónunnar við fyrirspurn DV segir að þetta hafi verið mannleg mistök. 

„Því miður urðu mannleg mistök sem leiddu til þess að grindum var víxlað, með þeim afleiðingum að vörum sem átti að farga var stillt upp í verslun Krónunnar í Hamraborg.  Mistökin uppgötvuðust fljótt og voru vörurnar fjarlægðar úr verslun,“ segir í svarinu.

„Þetta samræmist ekki verklagi Krónunnar. Við höfum farið yfir atvikið og verkferla með starfsfólki og gripið til viðeigandi aðgerða til að draga úr líkum á að sambærilegt endurtaki sig.“

Það sé í verkferli Krónunnar að vörum sem ekki eru hæfar til neyslu er fargað og þær flokkaðar í samræmi við verkferla fyrirtækisins.

„Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.“