Tilvonandi foreldrar og foreldrar ungra barna hafa stigið fram vegna erfiðleika í samskiptum við fæðingarorlofssjóð, sem heyrir undir Vinnumálastofnun. Í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag er samskiptunum lýst sem „vonlausri baráttu við ópersónulegt kerfi“, þá sé tölvupóstum svarað seint og illa.
Í síðustu viku var fjallað um mál Friðriks Rúnars Friðrikssonar og Ronju Rán Palladóttur sem eignuðust tvíburadætur eftir bráðakeisarauppskurð og uppgötvuðu á vökudeild að þau fengju ekki fæðingarorlof vegna ósveigjanleika í kerfinu.
Sjá frétt: Von hefur vaknað hjá tvíburaforeldrum sem synjað var um fæðingarorlof
Andrea Sigurðardóttir hefur nú opinberað sína sögu af sjóðnum í ítarlegri færslu á Facebook en hún lenti í slysi þegar dóttir hennar var fjögurra mánaða gömul.
„Þetta var gríðarlega erfiður tími. Þegar það gerðist gerði ég hlé á fæðingarorlofi og fór á sjúkradagpeninga í nokkrar vikur,“ segir Andrea. Hún fékk aðeins sex mánaða orlof þar sem hún er einstæð.“
„Ég fékk aðeins 6 mánaða orlof + þær fáu vikur sem faðir má gefa eftir og þurfti ég að drýgja þær eins lengi og ég gat með því að dreifa orlofinu yfir lengri tíma, en þá var hámarksgreiðsla í fullu orlofi aðeins um 600 þúsund krónur fyrir skatt, sem dugir ekki einu sinni nálægt því til að reka heimili þegar maður er einstæður.“
Vegna þess neyddist hún til að vinna að heiman í orlofinu eins mikið og hún gat til að forða þeim frá gjaldþroti. Framan af hafi sjóðurinn verið samvinnuþýður með að breyta hlutfalli orlofsins eftir á ef það kom í ljós að hún var búin að vinna inn fyrir meiru en hún mátti. Svo þegar hún hafði samband í september 2024 til að fá upplýsingar um tekjuhámarkið þá mætti henni annað viðmót:
„Starfmaðurinn sem svaraði spurði hvers vegna ég þyrfti þessar upplýsingar. Þegar ég útskýrði það fyrir henni fullyrti hún að það væri ekki hægt að breyta hlutfallinu eftir á. Ég benti henni kurteisislega á að það væri undarlegt því ég hefði gert það nákvæmlega sama áður vandræðalaust,“ segir Andrea.
„Viðkomandi starfsmaður tók því óstinnt upp að ég mótmælti fullyrðingu hennar og svaraði mér af miklum pirringi. Hún hélt því til streitu að ég væri á villigötum og bætti um betur með því að fullyrða að ég ætti von á að þurfa að endurgreiða það sem ég fengi „ofgreitt“ fyrir mánuðinn með 15% álagi.“
Ákvað Andrea að þræta ekki meira við starfsmanninn heldur senda beiðnina inn skriflega, líkt og hún hafi gert áður. Svarið barst síðar sama dag:
„En skjalið innihélt þó ekki neitt svar við erindi mínu, heldur var þetta miklu frekar hótunarbréf, með tilkynningu um að hugsanleg ofgreiðsla væri til meðferðar hjá Vinnumálastofnun og ég ætti von á að þurfa að greiða hundruð þúsunda til baka með 15% álagi.“
Sem betur fer var auðvelt fyrir Andreu að sýna fram á að það voru rangir útreikningar en það skildi hana eftir með óbragð í munni. „Það gat varla verið tilviljun að hótunarbréfið væri ranglega titlað sem svarbréf, þegar ég var með erindi til meðferðar hjá sjóðnum og beið svars. Hótunarbréfið gat einfaldlega ekki verið með öllu ótengt því að ég hafði samband fyrr þann sama dag og farið í taugarnar á starfsmanni fyrir það eitt að mótmæla fullyrðingu hennar.“
Andrea segir að það blasi við að gremja starfsmannsins hafi leitt til þess að greiðslusagan hennar hafi verið skoðuð. „Þetta atvik, sem ég get ekki séð öðruvísi en að fúll starfsmaður hafi reynt að bregða fyrir mig fæti, einstæðri móður sem fyrir var í mjög snúinni stöðu, varð þó til þess að ég gat ekki hugsað mér að eiga frekari samskipti við þennan sjóð.“