Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, hvetur landsmenn til að beita eigin dómgreind og láta ekki úrtölufólk hræða sig í að skoða aðild að Evrópusambandinu. Í langri og ítarlegri grein á Vísi í dag hæðist hann að þeim sem segja að ekki sé neitt um að semja við Evrópusambandið og að lífskjör muni hrynja niður í „austurevrópskt meðaltal“.
Það sama fólk telji það skynvillu að matur sé dýr á Íslandi og í hópnum séu þeir sem hafi verið á móti ýmsum framfaraskrefum, allt frá því að ganga í Atlantshafsbandalagið til þess að leyfa bjór og frjálsar útvarpsstöðvar.
„Það þurfti ekkert að skoða þetta. Þeir vissu betur. Fyrir okkur hin,“ segir Þórður Snær. Dylst engum að hann beinir orðum sínum að Áfram Ísland hreyfingunni. Listinn sé langur yfir sérlausnir sem ríki innan ESB hafi samið í gegnum tíðina og það sé engin hætta á að ríkisstjórnin hætti tiltekt sinni í efnahagsmálum.
Heimili rekin eins og vogunarsjóðir
Telur hann að evran muni með tíð og tíma frelsa landsmenn úr „vaxtafangelsi“ húsnæðislána.
„Svo má ekki vanmeta hversu mikill ávinningur felst í því að breyta íslenskum húsnæðismarkaði úr lottói í stöðugri og fyrirsjáanlegri breytu,“ segir hann. Í dag séu heimili rekin eins og vogunarsjóðir þar sem sjóðsstjóri velur alltaf hagstæðasta lánið hverju sinni.
„Til mikils er unnið ef börnin okkar þurfa aldrei að setja sig í það „sjóðsstjórahlutverk“,“ segir Þórður Snær.
„Það er líka staðreynd að mjólk, mjólkurvörur og egg eru 75 prósentum dýrari á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Það er staðreynd að kjötvörur eru 71 prósentum dýrari. Það er líka staðreynd að þetta útskýrist ekki af því að laun séu hærri á Íslandi vegna þess að verðmunurinn er nær tvöfaldur á við launamuninn.“
Þau fyrirtæki hafi stóraukið hagnað sinn og arðsemi á síðustu árum en hafni því að samhengi sé á milli þess og verðlagsins.
„Það er líka staðreynd að sömu fyrirtæki og selja okkur matinn selja okkur eldsneytið. Og það er staðreynd, samkvæmt annarri greiningu Samkeppniseftirlitsins, að álagning á seldan bensínlítra hefur hækkað um 25 prósent að raunvirði frá árinu 2022. Það er sömuleiðis staðreynd að á öllum helstu neytendamörkuðum á Íslandi er ekki keppt í verði heldur kannski fyrst og fremst ásýnd og þjónustu, sem gagnast buddu neytenda ekki neitt.“
Það sé staðreynd fyrir flesta Íslendinga sem eigi í mesta lagi íbúð þá sé Ísland almennt dýrara en lönd Evrópusambandsins.
„Húsnæðiskostnaður er meiri, matvara og eldsneyti dýrara og flest þjónusta líka. Fyrir þá sem eru með lágar tekjur þá fer meira og minna allt í húsnæði og mat.“
Engin valkostur nema segja já
Hvetur hann fólk til að beita eigin dómgreind á umræðuna um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst.
„Ég hvet ykkur til að vera forvitin og með sjálfstraust til þess að fá sjálf að vita hvað felst í samningi, í stað þess að láta þá sem þykjast geta séð allt fyrir gera það fyrir ykkur,“ segir hann.
„Ég hvet ykkur til að meta sjálf þau tækifæri sem geta falist í aðild að Evrópusambandinu, búa til ykkar eigin samningsmarkmið og máta svo niðurstöðuna þegar hún liggur fyrir við ykkar eigin veruleika. Hvort aðild að Evrópusambandinu muni gera ykkar líf betra. Sá valkostur fæst ekki nema með því að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst og fá samning á borðið.“
Fólk eigi að hafa sína eigin hagsmuni í fyrirrúmi:
„Ég hvet ykkur sérstaklega til að taka þeim sem ætla alltaf að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér af varúð og velta því fyrir ykkur hvort þeirra hagsmunir séu í alvöru ykkar hagsmunir. Ég hvet ykkur til að treysta því að þessi magnaða þjóð sé fullfær um að taka stærstu ákvarðanir sínar sem hópur og þurfi ekki á því að halda að menn sem líta á sig sem kjölfestu tali á hana taki þær ákvarðanir fyrir hana. Einn helsti ávinningurinn sem getur fengist með aðild er enda sá að bjarga okkur frá þeim og kerfunum sem þeir hafa byggt í kringum sig.
Sagan sýnir nefnilega að þessir menn hafa oftar en ekki rangt fyrir sér.“