Fréttir

Karamellan fokdýr við Kerið - „Fávitarnir eru nottlega þeir sem kaupa þetta“

Mynd
Mynd: Tripadvisor.

Íslenskur leiðsögumaður segir verðlagningu á einu stykki af karamellu í söluvagni við Kerið slá allt út í græðgi í ferðamennskunni hérlendis.

„Hvað fynnst ykkur vera eðlilegt verð fyrir eina (1 stykki) svona góu karmellu í söluvagni á gullna hringinum?

Í dag þurfti ég að fá smá auka orku og keypti eina dós af kók á 580kr sem er í dýrari kanntinum enn ekkert of óeðlilegt miðað við aðra staði. Enn svo bað ég um 2 karmellur... borgaði og tók þá eftir að ég var rukkaður heldur mikið eða 980kr. Ég spurgði þá, hvað kostaði karmellan.... 200kr stykkið. Vá hvað mér blöskraði,“ 

segir Sammi Richter í færslu sem hann birti í Facebook-hópnum Ferðaþjónusta á Íslandi allt sem er tengt ferðaþjónustu, sem telur tæpa 5 þúsund meðlimi.

Segir hann einn slíkan poka kosta 600 krónur í Krónunni, sem passar samkvæmt heimasíðu þeirra (599 krónur). Um er að ræða söluvagninn Panini Point Iceland, sem staðsettur er við Kerið í Grímsnesi.

Mynd

„Það er mikið talað um verðálagningu á kaffi og kökun... enn þetta slær allt út. Ætti ég ekki bara að opna karmelluvagn og selja bara karmellur... þar er sko gróðinn.“ 

Í athugasemdum bætir hann því við að hann hafi verið of fljótur að greiða og ekki séð verðið fyrr en hann greiddi með símanum í posann. Hann segir starfsfólkið hafa verið í vandræðum með posann og hann ekki nennt að bíða aðrar tíu mínútur eftir endurgreiðslu.

Eins og viðbúið er vakti færslan mikil og í flestum tilvikum hörð viðbrögð. Hér er brot af athugasemdum sem skrifaðar voru við færsluna:

„Það á að nafngreina alla svona okurbûllur þá kanski sneiðir fólk framhjá þeim.“ 

„Aldrei að versla í svona sjoppum.“ 

„Með þessu áframhaldi verðum við laus við alla túrista eftir 1-2 ár.“ 

„Maður skilar svona okurvöru. Við neytendur þurfum að standa í lappirnar 

„Veistu hvað svona bíll kostar, hvað hann borgar í aðstöðugjald ,launinn fyrir manninn sem afgreiddi þig, posagjaldi, já þú hefðir átt að koma við og kaupa poka í Bónus,“  skrifaði kona nokkur, sem fékk meðal annars svarið: „Haha já karamellurnar verða þà fljótar að borga upp bílinn það er bara eitt orð yfir þetta okur. Ógeðslegt!“ 

„Fávitarnir eru nottlega þeir sem kaupa þetta, þeir sem selja brosa bara hringinn yfir þessum fávitum.“