„Svona drengir skeina sér á skilorðsbundnum dómum. Þarna átti ekki að hika, heldur grípa tækifærið og nýta 57. gr. almennra hegningarlaga til að skilyrða dóminn með ströngum ákvæðum.
Með þessu áframhaldi framleiðum við afbrotamenn á færibandi til næstu áratuga. Svona dómar eru einfaldlega uppskrift að varanlegri áskrift að fangelsum landsins. Það er ekki að undra að almenningur sé hættur að taka mark á íslenskum dómstólum. Hvar er leiðbeiningin? Hvar er fræðslan? Fyrir þessum strákum er þetta bara saklaust „skamm, skamm, ekki gera þetta aftur“,“
segir Davíð Bergmann um dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þann 1. júní síðastliðinn þar sem tveir karlmenn, sem ekki eru nafngreindir í dómnum voru ákærðir fyrir líkamsárás, húsbrot, eignaspjöll og vopnalagabrot þann 26. apríl 2024 í Kópavogi gegn einum manni.
Annar ákærðu var einnig ákærður fyrir líkamsárás á tvo aðra menn á sama tíma og sama stað. Hann er einnig ákærður fyrir fíkniefnalagabrot á árinu 2025, umferðarlagabrot á árinu 2026, og brot á lögreglulögum á árinu 2026.
Sá hlaut 45 daga skilorðsbundnn dóm, þarf að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð, sæta sviptingu ökuréttinda í 18 mánuði, og upptöku á tóbaksblönduðu kannabisefni og hníf.
Ákvörðun refsingar félaga hans er frestað og fellur niður haldi hann skilorð í tvö ár. Hann þarf að sæta upptöku á hníf.
Saman þurfa þeir að greiða fyrsttalda þolandanum 250 þúsund krónur í bætur. Og sá sem ákærður var fyrir fleiri brot þarf að greiða hinum þolendunum 400 þúsund krónur og 300 þúsund krónur í bætur. Ákærðu þurfa jafnframt að greiða sakarkostnað vegna skipaðra verjenda sinna, 722.046 krónur og 353.400 krónur, og saman óskipt 49.617 krónur í sakarkostnað.
Í dómnum kemur fram að báðum ákærðu er talin til málsbóta ungur aldur þeirra og skýlaus játning þeirra fyrir dómi.
Í grein sinni á Vísi segist Davíð ekki geta orða bundist yfir dómnum og slík afgreiðsla í hans huga með öllu óskiljanleg.
„Mér finnst við vera að glata dýrmætu tækifæri og svona dómar eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hraun til framtíðar. Í mínum huga er þessi dómur algjört djók sem sendir háskaleg, tvöföld skilaboð til ungra afbrotamanna. Og hvaða skilaboð eru það eiginlega? Jú, miðað við svona dóma mun Stóra-Holt, eins og nýja fangelsið á að heita , engan veginn duga í framtíðinni. Ég held að við verðum frekar að fara að kalla það Risa-Stóra-Holt ef fram heldur sem horfir.“
Davíð segir að með dómnum sé algjörlega litið fram hjá hagsmunum hins almenna borgara, sem dómstólarnir eiga þó að verja. „Þeir sem brotið er á vilja nefnilega iðulega gleymast, enda virðist sú lenska uppi að aumingja- og bómullarvæða gerendur.“
Spyr Davíð hvað við ætlum að berja höfðinu lengi við steininn áður en tekið verði á þessum málaflokki af fullri alvöru og festu. Spyr hann eftir hverju sé verið að bíða:
„Öðrum hræðilegum atburði eins og þeim sem skók samfélagið á Menningarnótt hérna um árið? Við höfum hreinlega engan tíma til að bíða. Sérsveitin okkar hefur varla undan að sinna vopnuðum útköllum og það líður ekki sú vika að ekki sé frétt af hnífstungu eða alvarlegri líkamsárás. Og ég er ekki hissa, miðað við vægðina sem dómstólar sýna í málum sem þessum. Við verðum að fara að stokka þennan málaflokk upp frá grunni og það á að gera án allrar meðvirkni.“