fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Blaðamaður Morgunblaðsins harðneitar ásökunum Dags – „Hún skellti upp úr og neitaði því“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. mars 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu vísar fullyrðingum Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um að hún hafi vísvitandi valið „svipljóta“ mynd af Kristrúnu Frostadóttur, til að hafa með frétt í blaðinu, alfarið á bug. Segir Andrea að hún myndi aldrei gera slíkt og myndin sé bara flott og Kristrún sjálf hafi tekið undir það.

Dagur nefnir þó ekki Andreu á nafn í færslu um myndavalið á Facebook en fréttin er kirfilega merkt henni. Fréttin birtist í blaðinu í gær. Dagur skrifar:

„Takið eftir því að nú er Mogginn farinn að birta svipljótar (fyrirgefið orðavalið) af Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Ástæðan er ekki sú að það sé ekki til fjöldi góðra mynda af Kristrúnu, frá í gær og alla aðra daga. Nei, það er vegna þess að ríkisstjórn hennar er farin að ógna sérhagsmunum. Mogginn stendur sem kunnugt er vörð um stórfyrirtæki í sjávarútvegi og tengda fákeppni á fjölmörgum sviðum. Þá sem hafa tögl og hagldir í íslensku atvinnulífi. Mörg þessara fyrirtækja gera upp í erlendri mynt. En almenningur má ekki njóta evruvaxta og evru. Eða hvað?“

Flott mynd

Andrea harðneitar þessu hins vegar í svari við færslu Dags og segir myndina alls ekki ljóta:

„Fyrir það fyrsta er hin bráðhuggulega Kristrún að mínu mati mjög falleg á myndinni, þótt hún sé vissulega hvöss á svip. Það duldist engum að sú var stemningin þegar hún svaraði fyrirspurnum í þinginu í gær og því var myndavalið viðeigandi eftir því.“

Hún segir að hún myndi aldrei reyna að beita ljósmyndum til að niðurlægja fólk:

„Myndi það ekki hvarfla að mér að nota myndaval til þess að niðurlægja fólk útlitslega og allra síst konur. Ég þekki það sjálf á eigin skinni hvað það getur eyðilagt daginn fyrir manni að fjölmiðlar birti ljóta mynd af manni, nú síðast bara nýlega.“

Andrea segist hafa þvert á móti lagt sig fram við að velja sæmandi myndir af fólki, og sneiða fram hjá undirhökum og óheppilegum sjónarhornum:

„Meira að segja tók ég gagngert með mér ljósmyndara nýlega á fund ríkisstjórnarinnar til að mynda einn ráðherrann sem við áttum ekki nógu góðar myndir af, og var hún að vonum himinlifandi með það.“

Hún minnir hins vegar á að það gangi ekki upp að hafa uppstilltar myndir af fólki, teinréttu og skælbrosandi með öllum fréttum. Stundum geti fagurfræðilegt mat þess sem velur mynd verið annað en fyrirsætunnar. Flestir sem stígi inn í sviðsljósið þurfi að þola það endrum og eins að af þeim birtist myndir sem þeim hugnist síður. Það sé yfirleitt ekki gert af meinfýsni þótt sjálfsagt séu á því undantekningar eins og öðru.

Sátt

Andrea fullyrðir að Dagur sé að ósekju að móðgast fyrir hönd Kristrúnar sem hafi ekkert verið ósátt við myndina. Vísar Andrea að lokum til ummæla sem Kristrún lét falla um Dag fyrir síðustu kosningar:

„Ég spurði hana sjálfa hvort hún væri ósátt við myndavalið og hún skellti upp úr og neitaði því. Bætti svo við að henni væri almennt sama þótt það birtust ljótar myndir af henni, enda vita allir betur. Það er hárrétt mat hjá Kristrúnu, sem er full sjálfstrausts og hreint ekki lítil í sér. Enda er hún aðalleikari.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins
Fréttir
Í gær

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf