fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Ferðamenn hundsuðu viðvaranir og gengu á ísnum í Kerinu – „Kannski gleypir Balroggurinn þá“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 15. mars 2026 10:30

Tugir ferðamanna hundsuðu viðvörunarskiltið. Mynd/Reddit

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljósmynd náðist af fjölmörgum ferðamönnum ganga á ísnum í Kerinu í Grímsnesi. Viðvörunarskilti eru greinileg enda er það stórhættulegt.

Eins og segir í frétt á miðlinum The Cool Down náðist ljósmynd af mörgum ferðamönnum, á þriðja tug talsins, ana út á ísinni í Kerinu í Grímsnesi. Myndin hafði verið birt á samfélagsmiðlinum Reddit.

Við Kerið er mjög greinilegt viðvörunarskilti þar sem stendur „Don´t walk on the ice“, eða „Gangið ekki á ísnum.“

Viðvörunarskiltin eru ekki sett upp af ástæðulausu. Tjörnin í Kerinu er 7 til 14 metra djúp. Falli fólk í gegn er hætta á að það festist undir ísnum og drukkni í ísköldu vatninu.

Kunni ekki að lesa?

Hefur framferði ferðamannanna vakið hneykslun á netinu. Sérstaklega í ljósi þess að viðvörunarskiltin eru svo augljós.

„Það er ekki erfitt að lesa þetta er það?“ spyr einn í kaldhæðnistón á samfélagsmiðlinum.

„Kannski gleypir Balroggurinn þá,“ segir annar og vísar til hins risastóra neðanjarðardjöfuls í Hringadrótttins sögu J.R.R. Tolkien.

Er sama

Annar bendir á að þetta snúist ekki um lestrarkunnáttu. Þetta sé hrein og klár vanvirðing og fífldirfska.

„Þeir kunna að lesa, þeim er bara sama,“ segir hann. „Þó það séu skilti eins og þetta þá velur fólk að hundsa það. Að fara út á ísinn er ekki þess virði að deyja.“

Víða vandamál

Þetta atvik við Kerið er langt frá því að vera eina dæmið um að erlendir ferðamenn hundsi viðvörunarskilti á Íslandi. Birtar hafa verið margar fréttir um hættulega hegðun ferðamanna við Reynisfjöru. Því miður hefur fjöldi þeirra látist þar, þar á meðal börn, eftir að hafa lent í sjónum.

Sjá einnig:

Kínverskir ferðamenn sakaðir um óvirðingu – „Ég er ekkert hrifinn af því að fólk sé að príla upp á flakið“

Þá hafa ferðamenn einnig sést hundsa skilti við flugvélarflakið á Eyvindarholti undir Eyjafjöllum. Hafa ferðamenn prílað upp á flakið og hoppað á því þrátt fyrir að það sé stórhættulegt.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Íris tannlæknir varar við algengu vandamáli – Svona geturðu komið í veg fyrir það

Íris tannlæknir varar við algengu vandamáli – Svona geturðu komið í veg fyrir það
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Einstæð móðir og sjúkraliði gagnrýnir Kópavogsleiðina – „Ekkert nema sýndarmennska og fyrirsláttur“

Einstæð móðir og sjúkraliði gagnrýnir Kópavogsleiðina – „Ekkert nema sýndarmennska og fyrirsláttur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þau hlutu Blaðamannaverðlaunin fyrir árið 2025

Þau hlutu Blaðamannaverðlaunin fyrir árið 2025