

Theodóra Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Kópavogi, kallar eftir því að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, birti gögn, kynningu og leigusamning Vetrargarðsins í Smáralind. Oddviti Framsóknarflokksins segir um reikniskekkju að bærinn þurfi að greiða 1,5 milljarð vegna málsins.
Theodóra greindi frá því á miðvikudag að meirihlutinn í Kópavogi hefði flýtt í gegn máli um rekstur Vetrargarðs í Smáralind, menningarkjarna sem mun meðal annars hýsa „chillout“ rými fyrir pop-up viðburði, smiðjur og óhefðbundnar uppákomur. Hafi Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri fasteignafélagsins Heima þakkað Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra fyrir „skilvirkni“ þegar kæmi að því að koma málinu í gegn. En eins og Theodóra bendir á þá er ekki gert ráð fyrir þessum rekstri í fjárhagsáætlunum.
Orri Vignir Hlöðversson, oddviti Framsóknarflokksins, skrifaði grein og sagði um reiknivillu að ræða.
„Er nema von að spurt sé hvaða reiknistokk oddvitinn er að nota? Fjárhæðir í leigusamningi við Smáralind eru vissulega nokkrar en þær eru órafjarri því að vera á pari við það sem oddvitinn heldur fram. Árlegur rekstrarkostnaður menningarmiðstöðvarinnar í heild er áætlaður um 150 milljónir króna. Þar er verið að horfa á reksturinn í heild þ.e. laun, húsnæðiskostnað og allan annan rekstrarkostnað,“ sagði Orri í grein á Vísi.
Theodóra hefur nú svarað þessu og hafnar orðum Orra. Það er að ekki sé aðeins um leigu að ræða. Tillagan hafi falið í sér allan rekstur, svo em húsnæðiskostnað, laun og fleira.
„Meirihlutinn opinberar sig um það að þau eru viljandi að misskilja því annars væru þau búin að skamma mig fyrir brot á trúnaði fyrir að upplýsa um leiguna. Farsælast væri ef meirihlutinn birti gögnin, kynninguna og leigusamninginn þar sem áætlunin kemur fram. Þá gætu íbúar lagt eigið mat á hana. En hvað hafa þau að fela?“ segir Theodóra í svargrein á sama miðli.