fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Davíð lenti í stórhættu við Súðavík – „Í gær áttaði ég mig á því að meira að segja litlu snjóflóðin geta drepið þig“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 13. mars 2026 13:00

Davíð óttaðist að enda út í sjó. Myndir/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Pierre Milesi Gaches, íbúi á Súðavík, lenti í lífshættulegri reynslu í gær þegar tvö snjóflóð lentu á bílnum hans. Sagðist hann hafa óttast um líf sitt en er ánægður með viðbragð lögreglu og björgunarsveita.

„Þetta kom mér mjög á óvart. Fyrsta snjóflóðið sem lenti á mér var lítið. En nógu stórt til þess að ýta mér út af veginum, næstum út að sjónum,“ segir Davíð sem er franskur og flutti á Vestfirði árið 2020. Fyrstu fjögur árin bjó hann á Ísafirði og starfar þar enn en nú býr hann á Súðavík og keyrir á milli.

Ógnvænleg reynsla

Það var í gær um ellefuleytið sem Davíð lenti í þessari ógnvænlegu reynslu.

„Ég var mjög ringlaður og skyldi ekki strax hvað var að gerast. Vegurinn er ekki mjög breiður og maður getur vel endað í sjónum ef maður fer út af honum eða út í kletta,“ segir Davíð sem var einn í bílnum. „Ég reyndi að halda mér á veginum en þá lenti ég á öðru flóði. Ég endaði ofan á flóðinu. Ég sá út á sjó en ég sá ekki mikið og vissi ekki hvar ég var. Ég óttaðist það líka að aðrir myndu ekki sjá mig. Bíllinn startaði ekki og ég var ekki með nein ljós.“

Óttaðist að verða fyrir plógnum

Sem betur fer fann lögreglan hann fljótlega og sendi björgunarsveit. En snjóplógur kom frá Súðavík og hann óttaðist að hann myndi ekki sjá hann því hann fór frekar hratt yfir. Snjóflóðið sem hann hafði lent í var um tveir metrar á hæð, hærri en bíllinn.

„Ég var feginn að ég var ofan á því en ekki utan í því eða inni í því,“ segir Davíð sem slapp við líkamleg meiðsli og bíllinn slapp meira að segja merkilega vel. En andlega var hann mjög kvekktur.

„Í gær áttaði ég mig á því að meira að segja litlu snjóflóðin geta drepið þig,“ segir hann. Hann hafi talað við manninn á plógnum sem sagðist hafa hreinsað 7 snjóflóð á aðeins einum klukkutíma. Veginum var lokað og fimm bílar voru í röð. Það var hættulegt fyrir þá að vera stopp á þessum stað á þessum tíma.

Vill göng strax

Davíð segir að það sé ekkert grín að lenda í þessu. Sérstaklega af því að maður sjái ekki neitt og viti ekki hvað sé upp eða niður.

„Þegar ég kom  heim byrjaði ég að átta mig almennilega á í hvaða hættu ég var. Mig langaði að fara strax að grafa göng til Ísafjarðar,“ segir hann. Telur hann að göng milli Ísafjarðar og Súðavíkur ættu að vera í fyrsta forgangi. En áætlað er að grafa þau á næstu 15 árum.

„Ekki aðeins út af hættunni á veturna. Á sumrin hrynur mikið grjót úr fjallinu,“ segir Davíð. „Fáránlega stórir steinar. Það koma margir ferðamenn hingað og þeir búast ekki við þessu.“

Hann segist vera ánægður með viðbragð lögreglu og björgunarsveita. „Best væri að það væri engin þörf á þeim,“ segir hann samt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

„Færð bara yfir þig dembuna“

„Færð bara yfir þig dembuna“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn
Fréttir
Í gær

Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með 15 ára stúlku um borð í skip

Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með 15 ára stúlku um borð í skip
Fréttir
Í gær

Unglingur sakaður um að hrækja framan í lögreglumann á Hornafirði

Unglingur sakaður um að hrækja framan í lögreglumann á Hornafirði
Fréttir
Í gær

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss
Fréttir
Í gær

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir
Fréttir
Í gær

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”
Fréttir
Í gær

Meðalbiðtíminn eftir heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu 27 dagar – Fer upp í allt að 115 daga

Meðalbiðtíminn eftir heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu 27 dagar – Fer upp í allt að 115 daga