fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Segir okkur sem samfélag geta gert betur – „Hver ber ábyrgð á þessu ofbeldi?“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 12:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ebba Margrét Magnúsdóttir, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir, segir samfélagið allt geta gert betur þegar kemur að því að tryggja öryggi barna og ungmenna. Öllum beri okkur skylda til að tilkynna um mál þar sem okkur grunar að eitthvað sé að með því að hringja í 112.

„Gerendur koma úr öllum stéttum samfélagsins og þeir eru líka konur. Við þá vil ég segja þetta: Hugur ykkar og langanir eru sjúkar, leitið ykkur aðstoðar, ekki eyðileggja líf barna sem bíða þess ef til vill aldrei bætur með því að svala girndarþorsta ykkar.

Við sem samfélag getum svo miklu betur. Verum vakandi, sperrum eyrun, tökum niður sòlgleraugun og hlustum á börn og látum þau njóta vafans ef grunur um ofbeldi vaknar.“

Ebba Margrét – Skjáskot/RÚV

Tilefni greinar Ebbu Margrétar með yfirskriftinni Ekki benda á mig eru fréttir um illa meðferð á börnum á fósturheimilum og á leikskólum borgarinnar. Þekkir hún málaflokkinn vel vegna starfa sinna á Neyðarmóttökunni og í Barnahúsi um árabil.

„Í vinnu minni sem fæðinga og kvensjúkdómalæknir hef ég allt of oft séð afleiðingar af misnotkun í æsku og öðru kynferðisofbeldi.“

Ebba Margrét minnir á orðatiltækið að það þurfi þorp til að ala upp barn.

„Vissulega er það rétt en það er vandasamt að vera fyrirmynd ómótaðs einstaklings. Vera leiðandi og hvetjandi í orðum og gjörðum en líka setja mörk og halda reglu. Ólík erum við öll og mismunandi hvað þarf að gera fyrir hvert barn. Baklandið skiptir miklu máli. En því miður hafa ekki öll börn gott bakland. Foreldrar jafnvel ekki færir um að sinna sínu hlutverki. Þá þarf að senda þau í fòstur, oft til vandalausra. Ábyrgð fósturforeldra er mikil, eins er ábyrgð leikskóla og grunnskóla líka mikil. Það að vera vakandi fyrir því þegar pottur er brotinn og eitthvað ekki í lagi. Á liðnum vikum og mánuðum hefur þjóðin setið agndofa fyrir framan skjáinn er við höfum fengið fréttir af illri meðferð á börnum á fósturheimilum, en í dag eru enn fjöldi barna í fóstri. Einnig fréttir af meintri misnotkun á börnum í leikskólum borgarinnar, nú árið 2026. Hvað er að? Því eru þau ekki örugg í þessu umhverfi? Hvað hefur brugðist?“

Ebba Margrét segir samfélagið geta gert betur. Hún segir það hafa vakið furðu sína að fyrrum forstjóri Barnaverndarstofu, Bragi Guðbrandsson, hafi firrt sig allri ábyrgð á þeim ofbeldisbrotum sem karlmenn sem voru í fóstri á Bakkakoti hafa lýst og spyr sig til hvers yfirmenn slíkra stofnana séu.

„Það sem fer úrskeiðis á þeirra vakt er á þeirra ábyrgð jafnvel þó að þeim sé ekki kunnugt um það. Það er ábyrgðarhlutverk að sitja í Barnaverndarnefnd og það þarf að velja gaumgæfilega það fólk sem tekur að sér að taka börn í fóstur. Það má ekki vera fjárhagslegur ávinningur af því að fóstra börn heldur ást og umhyggja fyrir börnum og vilji til að koma þeim til aðstoðar í þeirra þrengingum.

Hvernig stendur á því að þegar fósturforeldri hefur gengist við því að leggja hönd á barn í sinni umsjá er ekki kærð og málið rannsakað? Heldur fær bara fleiri börn í fóstur, fleiri fórnarlömb. Það hlýtur að vera að einhverjir í nærumhverfi fósturheimilis þessara drengja hafi vitað að eitthvað var að. En það var bara auðveldara að segja ekkert og gera ekkert. Hver ber ábyrgð á þessu ofbeldi?“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum