fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gunnar Smári deilir alvarlegum fréttum af heilsu sinni

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 09:50

Gunnar Smári ritstjóri Samstöðvarinnar glímir við heilsubrest.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, greinir frá alvarlegum heilsubresti í færslu á samfélagsmiðlum í dag. En hann er með blóðtappa á nokkrum stöðum í líkamanum.

„Ég verð ekki á Samstöðinni næstu daga, var sendur heim af lækni til að gera sem minnst. Ég er ekki beint veikur en svolítið bilaður, er með blóðtappa í fæti, lungum og hjarta og ekkert af þessu virkar sem skyldi, ég er því orkulítill og einhvern veginn þrjátíu árum eldri en ég var fyrir nokkrum vikum,“ segir Gunnar Smári í færslu.

Hann segir það skrýtna tilfinningu að vera ekki þjáður en samt alveg glataður á einhvern hátt.

„Ég hef alla tíð verið blessaður með öflugri vél innra með mér, hef getað gert allt sem mér hefur dottið í hug, jafnvel ráðist á ókleyfa múra. En nú er ég magnþrota gagnvart minnstu hindrunum, get ekki hugsað mig í gegnum neitt, ekki drifið nokkurn skapaðan hlut af,“ segir hann.

Í gær hafi staðið til að gefa honum stuð svo hjartað færi að slá með eðlilegum hætti. Það var hins vegar ekki hægt því það fundust blóðtappar í hjartanu. Þeir gætu stokkið upp í heila og valdið slagi. „g verð því að lifa sem maður á tíræðisaldri einhverja daga til viðbótar.,“ segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum