fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Grænlenskur múrari gaf Trump hugmyndina um bandarískt sjúkraskip til Grænlands

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Af mörgum undarlegum uppátækjum Donalds Trump Bandaríkjaforseta þá þykir nýleg færsla hans á Truth Social þess efnis að bandarískt sjúkraskip væri á leiðinni til Grænlands til að hlúa að bágstöddum Grænlendingum með því undarlegra.

En frétt grænlenska ríkisútvarpsins, Kalaallit Nunaata Radioa (KNR), leiðir í ljós að hugmyndin er í vissum skilningi grænlensk. Kemur hún þó ekki frá grænlenskum yfirvöldum heldur frá múrara í Nuuk, sem er mikill stuðningsmaður Trumps.

Maðurinn heitir Jørgen Boassen. Hann hefur rætt stöðu heilbrigðismála á Grænlandi við bandaríska stjórnmálamenn, þar á meðal Jeff Landry, ríkisstjóra í Louisiana og repúblikana.

Þess má geta að Boassen var í vinfengi við hinn umdeila baráttumann Charlie Kirk, sem skotinn var til bana í fyrra. Á Facebook-síðu sinni birti Boassen skjáskot af fyrstu skilaboðunum sem Kirk sendi honum og prófílmyndin á síðunni er af þeim Boassen og Kirk saman:

Boassen er gagnrýnin á yfirráð Dana yfir Grænlandi og vill efla tengslin við Bandaríkjamenn. Hann er mikill aðdáandi Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

Boassen telur að heilbrigðiskerfið á Grænlandi standi frammi fyrir miklum áskorunum og að fólk fái ekki alltaf þá þjónustu sem það þurfi. Hann segist, í viðtali við RNK, hafa komið þessum sjónarmiðum á framfæri við Bandaríkjamenn og að í kjölfarið hafi Trump sett fram hugmynd um að senda stórt sjúkrahússkip til að aðstoða Grænlendinga.

Ljóst er að beiðni um sjúkraaðstoð Bandaríkjamanna til handa Grænlendingum er með öllu óformleg og á rætur að rekja til þessa sérstæða grænlenska baráttumanns og samskipta hans við bandaríska ráðamenn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“