fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Heyrnartól setja ný viðmið – allt að 120 klst rafhlöðuending

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 17:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danska fyrirtækið Jabra hefur kynnt til sögunnar heyrnartól fyrir vinnuumhverfi sem gerir notenda mögulegt að nota þau í allt að 120 klst án þess að þurfa að hlaða þau. Um er að ræða Jabra Evolve3 85 sem gerir notanda kleift að hlusta á tónlist í allt að 120 klst í einni hleðslu.

„Evolve3 eru fyrstu heyrnartólin í sínum flokki sem ná slíkri endingu. Ending af þessum toga er sérstaklega mikilvæg fyrir fólk sem vinnur í síbreytilegu umhverfi, ferðast mikið eða vill einfaldlega losna við að vera stöðugt að hlaða,” segir Kristinn Helgason vörustjóri hljóð- og myndlausna hjá tæknifyrirtækinu OK.

Nýja Evolve3-línan samanstendur af tveimur gerðum, Evolve3 85 (yfir eyru) og Evolve3 75 (á eyru), og eru þau ætluð að brúa bilið milli hefðbundinna vinnuheyrnartóla og tónlistarheyrnartóla. Í stað hefðbundins sveigjanlegs hljóðnema eins og í fyrri gerðum notar Evolve3 innbyggt fjölhljóðnema-kerfi með gervigreind sem einangrar rödd notandans og dregur úr umhverfishávaða í rauntíma. Þessi tækni, sem Jabra kallar ClearVoice og á að tryggja skýrari símtöl og fjarfundi án þess að fórna útliti eða þægindum. Heyrnartólin styðja einnig virka hljóðeinangrun (ANC), rúmhljóð (spatial sound) og eru vottuð fyrir helstu fjarfundakerfi á borð við Microsoft Teams og Zoom. Samkvæmt Jabra geturEvolve3 85 tryggt allt að 120 klukkustundir af tónlistarhlustun á einni hleðslu, en Evolve3 75 allt að 110 klukkustundir.

„Jabra Evolve3 sameinar það sem viðskiptavinir hafa lengi kallað eftir; enn betri hljóðgæði, ótrúlega rafhlöðuendingu og hönnun sem virkar jafnt í vinnu sem utan hennar. Þetta eru heyrnartól sem henta nútíma skrifstofuvinnu,“ segir Kristinn Helgason.

Jabra Evolve3 heyrnartólin eru væntanleg í mars. Hægt er að forpanta heyrnartólin hjá OK.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”