fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Engin ákvörðun tekin um ákæru gegn Skúla Tómasi – Grunaður um að hafa valdið ótímabærum dauðsföllum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Engin ákvörðun hefur verið tekin hjá embætti héraðssaksóknara um hvort Skúli Tómas Gunnlaugsson, fyrrverandi læknir hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), verður ákærður fyrir manndráp eða ekki. RÚV greinir frá.

Mál Skúla Tómasar hefur verið á borði embættisins í þrjú ár og þar áður var það tvö ár í rannsókn lögreglu. Hann sætti lögreglurannsókn vegna gruns um að hafa valdið ótímabærum dauðsföllum sex sjúklinga á tímabilinu 2018 til 2020, á HSS, með því að setja þá í ótímabæra lífslokameðferð.

Meðal aðstandenda er Eva Hauksdóttir lögfræðingur en hún birti grein á Vísir.is þar sem hún minnir á að fimm ár eru liðin síðan hún og systkini hennar lögðu fram kæru á hendur þremur heilbrigðisstarfsmönnum, þar á meðal Skúla Tómasi, vegna þeirrar meðferðar sem móðir þeirra fékk á HSS. Móðir þeirra gekkst þar undir hvíldarinnlögn en var sett í lífslokameðferð.

Rannsókn á máli tveggja starfsmanna var felld niður en rannsókn á máli Skúla Tómasar var haldið áfram.

Skúli Tómas var sviptur lækningaleyfi í kjölfar rannsóknar embættis landlæknis á vinnubrögðum hans, en hefur síðan fengið lækningaleyfi á ný.

Í svari héraðssaksóknara við fyrirspurn RÚV kemur fram að engin ákvörðun hefur verið tekin um ákæru í málinu. Málið er rannsakað sem manndrápsmál og slík mál fyrnast ekki. Óeðlilega löng málsmeðferð getur hins vegar haft áhrif á refsingu, ef til hennar kemur.

Sjá einnig: Fjölskylda Evu fær ekki svör – Læknirinn sem ákvað lífslokameðferð móður hennar enn starfandi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum