fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Skuggaleg könnun í Eyjafirði – Fjölmargir Einingarfélagar hafa frestað læknisheimsóknum og lyfjakaupum

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. febrúar 2026 19:30

Eining-Iðja er með skrifstofur á Akureyri, Dalvík og Fjallabyggð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

27 prósent félagsmanna verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju í Eyjafirði hafa frestað eða hætt við læknisheimsókn vegna kostnaðar. Hlutfallið hefur aldrei verið hærra. 20 prósent hafa frestað eða hætt við lyfjakaup.

Þetta kemur fram í könnun sem Gallup gerði fyrir Einingu-Iðju undir lok síðasta árs og var nýlega birt á vefnum Akureyri.net. En könnunin sýnir versnandi stöðu félagsmanna.

Í könnuninni kemur fram að 44 prósent hafi miklar eða frekar miklar áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni. 55 prósent búa í eigin húsnæði en 35 prósent í leiguhúsnæði. 20 prósent telja sig búa við lítið húsnæðisöryggi.

Yfirdráttur og smálánin erfiðust

Eins og áður segir hefur stór hluti félagsmanna frestað eða hætt við að leita sér heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar. Hlutfallið er enn þá hærra þegar kemur að tannlæknaþjónustu, en 44 prósent hafa frestað eða hætt við að leita til tannlæknis.

Kemur fram að tæplega helmingur, það er 49 prósent, séu með húsnæðislán og 16 prósent hafa breytt úr óverðtryggðum í verðtryggð til þess ða lækka greiðslubyrðina. 27 prósent eru með yfirdráttarlán og 11 prósent með smálán. Um 20 prósent segjast eig erfitt með að greiða af lánum, sérstaklega yfirdrætti og smálánum.

Neikvæðar breytingar á leikskólum

Þá hafa breytingar á opnunartíma og hækkanir leikskólagjalda komið illa við hópinn. En 87 prósent fólks með barn á leikskóla hafa orðið fyrir barðinu á þeim. 44 prósent eru mjög eða frekar ósátt við þetta og sama hlutfall hefur þurft að stytta vistunartíma. Stór hópur hefur þurft að breyta eða stytta vinnutímann, eða stytta dagvinnutímann og aukið vinnu utan dagvinnu.

Að lokum kemur fram að um 60 prósent hafa ekki fengið styttingu vinnuvikunnar. Meðalvinnustundafjöldi eru 44 tímar á viku.

Könnunin var lögð fyrir 3 þúsund félagsmenn Einingar-Iðju. Svarhlutfallið var 47 prósent.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum