fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þórður skammar stjórnarandstöðuna fyrir frekjukastið – „Þau hafa ekkert málefnalegt til málanna að leggja“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 10:30

Þórður skýtur föstum skotum á stjórnarandstöðuna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að minnihlutinn á Alþingi verði að átta sig á því að hann sé minnihluti. Þannig virki lýðræðið. Frekja og valdamissisgremja einkenni málflutning minnihlutans.

„Þau hafa ekkert málefnalegt til málanna að leggja. Strategían gengur einvörðungu út á að vera fyrir og saka réttkjörin stjórnvöld um að kunna ekkert, vita ekkert, geta ekkert. Fái þau ekki það sem frekjukastið krefst þá eru vinnubrögðin alltaf sögð með ólíkindum, allt er fordæmalaust og í trássi við allar hefðir og hver andstöðuþingmaðurinn á fætur öðrum fer upp í pontu og spyr á innsoginu hvert við séum komin,“ segir Þórður í aðsendri grein á Vísi í morgun.

Leikrit

Í greininni reifar Þórður feril grásleppufrumvarpsins svokallaða. Það er að taka grásleppu úr kvóta og taka aftur upp sóknarmarkskerfi í greininni. En þar hefur stjórnarandstaðan heimtað annað lögfræðiálit þar sem henni hafi ekki lánast að ákveða hvað hún vildi spyrja um í fyrra lögfræðiálitinu.

„Hún býr víst ekki yfir nægilegri lögfræðiþekkingu í starfshópi sínum til að geta formað spurningarnar. Og ætlaðist til þess að eftir því yrði beðið, helst þangað til að málið myndi deyja drottni sínum, að þau fyndu þann takt,“ segir Þórður.

En því var hafnað og hafa þingmenn stjórnarandstöðu þá sett á svið leikrit sem kallast málþóf. Sé það ekki í fyrsta sinn.

„Það hefur meðal annars áður verið leikið í umræðu um innleiðingu á áföstum plasttöppum, í umræðum um fríverslunarsamninga sem allir voru sammála um, í frumvarpi um innleiðingu nýs samræmds námsmats í grunnskólum og svo auðvitað undir heilagri skyldu sinni fyrir stórútgerðir landsins í veiðigjaldamálinu þar sem Íslandsmet í þessum efnum var sett. Fyrir utan alla tafarleikina sem leiknir eru í störfum nefnda þingsins,“ segir Þórður.

Hegðun Jóns Gunnarssonar

Meðal annars hafi Jón Gunnarsson sagt að honum hugnaðist ekki frumvarpið og að ef það kæmist á dagskrá þá myndi það „neyða okkur til að tala hér lengur í öðrum málum til að forða því að þetta ómögulega mál fari á dagskrá.“

„Þetta er sami Jón Gunnarsson og kallaði félags- og húsnæðisráðherra ótíndan götustrák í ræðu á Alþingi á þriðjudag og spurði síðan um sama ráðherra: „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega inn á þing“. Svo fór Jón fram á að forseti Alþingis myndi ávíta umræddan ráðherra, sem hann var sjálfur nýbúinn að kalla götustrák og fyrirbæri,“ segir Þórður. En Jón hefur síðan þurft að biðjast afsökunar á orðum sínum.

Hegðun Bryndísar Haraldsdóttur

Þá bendir Þórður einnig á Bryndísi Haraldsdóttur sem tali með allt öðrum hætti núna en þegar hún var formaður allsherjar og menntamálanefndar fyrir þremur árum þegar útlendingamál voru á dagskrá og stjórnarandstaðan kallaði eftir lögfræðiáliti.

„Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar á þeim tíma og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram eftirfarandi bókun á móti: „Formaður vísar ófaglegum vinnubrögðum á bug. Málið hefur verið til umfjöllunar í langan tíma og fjöldi gesta komið á fund nefndarinnar.““ segir Þórður. „Nú er annar taktur í þessu sama fólki. Sama Bryndís sagði til að mynda í ræðustóli þings á þriðjudagskvöld, og vísaði þar til grásleppufrumvarpsins, til að kalla eftir vönduðum vinnubrögðum í máli sem hafði verið til umfjöllunar í nefnd í langan tíma og fjöldi gesta hafði komið á fund hennar. Nú var lífsnauðsynlegt að samþykkja beiðni sem átti ekkert erindi í öðrum máli.“

Valdamissisgremja

„En það sem er mest opinberandi er að þetta er eini tilgangur stjórnarandstöðunnar. Hún ætlar sér að koma í veg fyrir að meirihlutaviljinn nái fram að ganga. Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og skilnaðarbarnið þeirra Miðflokkur telja sig eiga að ákveða hvaða pólitísku áherslumál eigi að verða að lögum í landinu, líka þegar kjósendur hafa hafnað þeim og kosið aðra til valda. Það er öll virðingin fyrir lýðræðinu,“ segir Þórður í niðurlagi greinarinnar. „Minnihlutinn er einfaldlega að farast úr valdmissisgremju. Og skilur ekki að hann eigi ekki hefðarrétt á því að stjórna Íslandi. Hann virðir ekki lýðræðislegan rétt meirihlutans, sem minnihlutinn lítur á sem boðflennur í stjórnarráðinu, til að koma pólitískum áherslum sínum í framkvæmd og leggur þær síðan í dóm kjósenda í næstu kosningum. Um það snýst þetta mál og öll hin. Ekkert meira og ekkert minna. Og það þarf almenningur að vita og sjá.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump